Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1946, Side 49

Eimreiðin - 01.04.1946, Side 49
eimreiðin GISTING 113 Hrafn Haug yfir höfði lians þvert yfir dalinn, úr þokunni og inn í liana. Einu liafði hann leynt Halldór Pétursson, og það lá við, að liann gæti dulið sjálfan sig þess líka á stundum, nu orðið. Hann livarf ekki heim eingöngu vegna ræktarinnar við föður sinn né átthagatryggðar. Það var eitthvað í sál lians, sem krafðist samlífsins við náttúruna, eittlivað, sem hungraði og þyrsti, þegar liann var innilokaður á strætunuin, eða tók þátt í innantómu og hégómlegu skemmtilífi félaganna spilum, drykkjuskap, stælum og orðræðum, sem fyrst og fremst vom til þess hafnar að drepa tímann. Eitthvað, sem knúði liann x leit inn í afgrunn hugans og út í sjálft hyldýpi liiminsins. Eitthvað, sem krafðist þess, að liann gætti sín sjálfs eins og dýrrar perlu, sem ekki mátti týnast. Hann liafði kannske aldrei gefið þessu nafn, en í liugarfylgsn- nni sínum vissi liann þó, að á nxáli trúmannanna myndi það yera kallað — leit að guði. Ef svo var — liafði hann þá heldur iundið Hann heima? Ætti hann að vera alveg lireinskilinn, þá vissi liann það varla. Nissi það eitt, að ævinlega var náttúran full af leyndardomum, sem vöktu óljósa meðvitund um æðri mátt. Og a stundum var hún óendanlega stór og ólýsanlega fögur — dýrðleg eins og úelgidómur guðs. Og þá leið honum þar vel. Já, a stundum fannst honum óneitanlega hann einmitt þar vera í föðurhúsum. Jóhann var nú kominn að hylnum. Hann tok stongma af oxl- iuni, hagræddi færinu, beitti öngulinn og kastaði. Á örfáum augnablikum varð á honum gerbreyting. Höfgi vínsins var rok- iun út í veður og vind. öll heilabrot um líf hans og framtíðina eius og þurrkuð út úr vitundinni. Nú var liann líkastur ketti, sem læðist á bráð. Aldagamalt veiðimannseðlið blossaði upp í lionum eins og logi, sem olíu er skvett í. Nú varð liann var. Hver taug titraði, liver vöðvi spenntist. ^arna kippti liann þó laglega í, sá bröndótti. Nú mátti hann aðeins ekki sleppa, en varð að komast á land. Þetta var áreið- aulega tveggja—þriggja punda urriði. Hann var sannarlega ueppinn, ef hann næði honum. Og barátta mannsins við silunginn úófst — harátta upp á líf og dauða af hálfu silungsins, — stymp- lngar og brögð á báða bóga, — tvísýnn leikur um drykklanga

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.