Eimreiðin - 01.04.1946, Blaðsíða 84
148
ÞREKRAUNIR
eimreiðin
elzta sonar síns, og góðra nianna. Hún lézt á Stóra-Steinsvaði
3. marz 1839 lijá Jóni syni sínum, sem þá var farinn að búa þar.
Meðal barna Þorsteins og Valgerðar — auk Jóns — voru Kristín,
Daníel og Rollant. Sonur Jóns var Einar prófastur, en Kristín
var amma Sigurðar á Hafursá Einarssonar.
Rollant lærði trésmíði og búsasmíði, fyrst hérlendis, en síðan
í Kaupmannaliöfn. Eftir heimkomuna var bann við smíðar hja
bændum liér og þar. Meðal annars byggði hann baðstofu fvrir
Hallgrím bónda á Skeggjastöðum á Dal, Pétursson. Á jólaföstu
liafði liann lokið smíði baðstofunnar og ætlaði til smíða að Arn-
lieiðarstöðum. Lagði liann til Fljótsdalslieiðar frá Skeggjastiiðum,
fyrsta sunnudag í jólaföstu, einn með smíðatól sín á baki. Brast
á hann stórliríð, og varð liann úti. Það mun liafa v.erið stuttu
fyrir andlát móður hans.
Á Arnheiðarstöðum var kunnugt um væntanlega komu Rollants
þangað, en ekki livern dag hann myndi koma. Það mun hafa
verið sama daginn, sem Rollant varð úti á Fljótsdalslieiði, að
griðkona á Arnheiðarstöðum var framrni í eldhúsi stödd fynr
opnum dyrum. Sér liún þá Rollant ganga fyrir dyrnar, alsnjóugan,
áleiðis til baðstofu, en þegar um liæl fram göngin aftur. Kom
lienni í hug, að hann hefði farið fram aftur til að hreinsa af ser
snjóinn, áður en liann gengi í baðstofu. Gekk liún til dyra þegar
á eftir honum, en þá var þar enginn maður. Brátt fréttist að
Arnlieiðar8töðum um afdrif Rollants, og var þá tíðrætt um þenna
fyrirburð. Óstaðfestir eru tíðast fyrirburðir, sem þessi, en ekki
óalgengir.
Þau unnnæli liafa verið liöfð eftir Valgerði, stuttu fyrir andlat
bennar, að Fljótsdalsheiði hefði orðið sér þyngri í skauti en öðrum
mönnum, þar sem úti liafi orðið á henni bæði bróðir sinn og
sonur, en eiginmaður sinn fengið á henni þann lirakning, sem
hann beið ekki bætur til æviloka.
Afkoma Þorsteins af Fljótsdalslieiði, þótt nauðuleg væri, eftir
níu dægra hrakning í ófæru-snjóbyl, lýsir afburða þreki, bæði
líkamlegu og andlegu. En ætla má, að raunir Valgerðar allar,
sem liér liefur verið frá sagt, liafi reynt litlu minna á liugarstyrk
bennar og skapþrek.
Halldór Stefánsson.