Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1912, Side 5

Ægir - 01.03.1912, Side 5
ÆGIR. 29 skildi ekki og skil aldrei, hversvegna veif- urnar eru sparaðar svo mjög við skipa- komur yfirleitt, og síst skil jeg það, þeg- ar svo mikill fjöldi bæjarmanna hvort- heldur lcveðja eða heilsa, eins og á sjer stað, þegar fiskifloti okkar byrjar eða endar ferðir sinar. Þið getið naumast hugsað ykkur hversu ertandi það er að sjá stengur ykkar, sem göngustafi á beru hjarni, berstripaðar þegar við siglum með fána vorn i fullum hún. Falla þá augu mín á tvo fjarska fall- ega botnvörpunga, sem lágu á höfninni, reglulega knarreist og »trölls«leg skip, enda af sumum tröll kallaðir. Mjer datt i hug: Mindarleg afkvæmi hafa kugg- arnir þarna látið eftir sig, óskandi aö þessir yrðu ekki eftirbátar forfeðra sinna, þá mundi Reykjavik eiga góða framtíð. Við fórum nú af stað, en engum veifuín fjölgaði fyrir það, og hjeldum sem leið lá út að Garðskaga, sje jeg þá hvar fjöldi opinna báta, sigla langt vest- ur, i haf út af skaganum, svo langt að jeg i sjónauka naumast gat sjeð seglin sumra. Jeg er nú engin sjóhetja, enda brá mjer til muna, og datt i hng: Komi nú landsynningsstormur á þessa menn þarna, hversu margir munu þá með heilu komast aðlandi? Væri þetla ann- arstaðar en hjer á landi, myndi maður hafa sjeð einhverskonar vjelaskip á vakki nálægt þessum litlu fleytum, þeim til hjálpar ef þörf gerðist, en hjer var ekk- ert. Mjer flaug i huga veturinn 1906 með stórtíðindunum miklu, þá mundi jeg að samskot voru hafin af ýmsum bæjarbúum Reykjavikur og átti að verja samskotunum að einhverjum hluta til að smíða eða útvega björgunarbát á flóann. Jeg hef ekkert kynt mjer hvernig þeim samskotum reiddi af og heldur engan sjeð bátinn, en sje nokkursstaðar þörf á björgunarbát, þá er það hjer, meðan sunnanbúar stunda sjó á opnum bátum og þurfa svo langar leiðir að fara til að ná í afla. Mjer varð af forvitni litið upp á landið og sá hinar marglitu byggingar, margar fremur snotrar en auðsjáanlega flestar byggðar úr timbri og járni eins og flest hús hjerálandi. Þessi hús, sem kosta ærið fje, en endast ekki að þvi skapi. Þarna sá jeg meðfram allri strönd- inni breiða rönd af mjallahvitum skelja- sandi, sem auðsjáanlega var ællaður hjer- aðsbúum til einhverra nota. Og hvaða not má þá hafa af honum? Hann er einmitt það bjrggingarefni, sem þið ættuð að nota, ef þið byggið hús ykkar úr honum, eftir nútiðar máta, þá byggið þið ekki að eins handa ykkur eingöngu, held- ur líka handa eftirkomendum ykkar. Þessi hús eru af öllum talin góð eign og árlegt viðhald og ábyrgðargjald hverf- andi í samanburði við timburhúsin. Það gæti hugsast, að þessi sandur yrði verzl- unarvara fyrir ykkur, að ógleymdu þvi að á skaganum, einmilt i þessari sendnu jörð, mætti rækta svo mikil jarðepli, að gjaldaliður sá, er á hverju ári nemur um 75 þúsundir króna fyrir aðflutt jarð- epli, gæti að öllum líkindum algjörlega horfið. Þar næst varð mjer litið á gamla höfuðbólið Sandgerði, vissi jeg að þar var bátalending hin besta til forna, og bjóst við að sjá — eftir öðrum framför- um að dæma — gömlu leiðarmerkin skír og greinileg, en þvi fór fjarri1). Keilir er að visu jafn skír og áður, en sá gallí fylgir honum, að hann er svo felugjarn og eins var i þetta sinn, landmóðan hafði hjúpað hann blæju sinni. Þá var varð- an gamla i heiðinni, hún var löngum 1) Pegar slööin nýja var reist i Sandgerði, voru ný leiöarmerki gerð úr trje i staö hinna gömlu, sem bæöi voru ónóg og óljós. Ritstj.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.