Ægir - 01.03.1912, Qupperneq 13
ÆGIR.
37
og Ólafs fríkirkjuprests Ólafssonar. Útgerð
skipsins kvað hafa geíið 2 þús. króna til
samskotanna. En safnast þurfa mörg 2
þúsund.
Þá varð annað stórkostlegt manntjón
á skipinu vLanganesv., eign hlutafjelagsins
P. I. Thorsteinsson & Co. Þar tók út í
ofsaveðrinu sama 5 menn, er láta eítir
sig ekkjur og börn sumir þeirra.
Menn þessir voru:
1. GuðjónJónsson fráÁnanaustum íReykja-
vík, ekkjumaður og á eitt barn á lífl.
2. Jón Pálsson, einnig úr Reykjavík, 28
ára að aldri, lætur eftir sig konu og
börn. ,
3. Kristján Magnússon, ókvæntur maður,
frá Patreksíirði.
4. Sigurður Jónsson, frá Syðstavelli í Ár-
nessj'slu, ókvæntur maður, 28 ára að
aldri.
5. Sigurgeir Ólafsson, frá Bjarnaborg í
Reykjavík, lætur eftir sig ekkju og eilt
barn.
Sömu nótt tók út mann af skipinu
»Haffari«, eign Sigurðar Jónssonar í Görð-
unum. Hann ljet eftir sig ekkju og börn.
Maður þessi bét Þórður Erlingsson og átti
heima i Reykjavík.
Þetta eru þeir mestu mannskaðar, sem
hafa orðið hjer, síðan »Manntjónið mikla«
vorið 1906.
Þá liafa 3 menn slasast á botnvörp-
ungum — einn handleggsbrotnað, annar
skemst á höfðinu og þriðji mist annari
fótinn, ltafði orðið fyrir virnum.
Öll þessi slys ættu að verða sjómönn-
um vorum mikil hvöt til þess að vátryggja
líf og limu.
Aflabriigð
hjer sunnanlands hafa verið, það sent
af er vertíðar, rnikið stopul og rýr. Gæftir
vanstiltar fyrir sunnan land nú urn fjögra
vikna tíma.
í Vestmannaegjnm lítill aíli frá um
miðjan febrúar. Á Stokksegri, Egrarbakka
og Porlákshöfn kom ganga nærri landi fyr-
ir miðjan þ. m., og aflast vel þegar gefur.
í Höfninni best. Þaðan gengur 21 skip, 16
ntenn á hverju. 20 staða skipti. Upp undir
öOíhlut. ÍGrindavík sömuleiðis. ÍHöfnum og
á Miðnesi lítill aíli á opna báta. Aftur á
rnóti hafa mótorbátar frá Sandgerði fengið
þó nokkurn afla. Um 20. þ. m. munu
þeir hafa verið búnir að afla um 6000 til
jafnaðar, mest lóðafisk. Nelafiskur nauða-
lítill, en er nú aíð lifna. Fiskur allur á djúp-
miðum. Fyrir innan Skaga hafði ekkert afl-
ast fram oð þeim 20. þ. m.
Þilskipin hjeðan úr bænum hafa einn-
ig lítinn afla. Meðalafli um miðjan þenna
mánuð 5—6 þúsund.
Botnvövpungarnir
liafa aflað eins og hjei
segir:
Snorri Sturluson til 26/s • • • 50 þús.
Frej'r til 24/s 26 —
Snorri goði til ls/3 70 —
Skallagrímur til 18/a 70 —
Baldur (Th. & P. Th.) íil 27/3 . . 45 —
íslendingur til 16/s 20 —
Leiguskip (Elías St.) lil 1G/3 . . 10 —
Leiguskip (Elías St.) til n/s . . 16 —
Marz til ®/s 18 —
A. G. (leiguskip) til 22/3 . . . 44 —
Jón forseti til u/a 40 —
Skúli fógeti til 17/3 33 —
Garðar landnemi (H. Zoega) til n/s 25 —
Leiguskip (H. Zoéga) til . . 31 —
Bragi (Th. & P. Th.) til 2d/s . . 30 —
Veiðarfæratjóu.
Það er daglegt brauð, á vetrarvertíð-
inni einkum, að missa meira eða minna af
veiðarfærum, oftast vegna óveðurs, en stund-
um vegna þess, að nágranninn er ekki nógu
frómur.
En þess munu þó einsdæmi, að veið-
arfæri tapist í einni veiðistöð i einum róðri
fyrir þúsundir króna, en áreiðanlegur og
kunnugur maður sagði oss, að á tveim
dögum liefðu Vestmannejúngar mist veið-
arfæri fyrir um 7000 kr., og alt auðvitað
óvátrygt. Það þarf þó nokkra fiskugga lil
þess að bæta þann skaða.