Ægir - 01.03.1912, Side 16
40
Æ G I R .
2 railj. 788 þús. kr.
veittu Svíar á síðasta þingi úr rikis-
sjóði til þess að byggja fiskihafnir, 24 að
tölu, i ár. Auk þess var það samþykt, að
ríkið tæki að sér í framtiðinni að byggja
og endurbæta um 60 aðrar fiskihafnir.
Norðraenn
veittu fyrir fjárhagstímabilið, frá 1. júli
1911 til 30. júní 1912, 409,300 kr. til eft-
irlits, verndunar og eflingar fiskiveiðum
ríkisins. þar af til fiskifjelaga í einslökum
hjeröðum landsins 33,800 kr., gegn % til-
lags frá hjeröðum þeim, sem hlut áttu að
máli.
19—20 þús. hvalir
er talið að drepnir hafi verið í Suður-
höfunum árið 1911. Við Englandsstrendur
hafa í síðustu 6 ár verið drepnir frá 250
og upp i 700 á ári, við Ný-Fundnaland á
sama tíma frá 450—1300 á ári, við ísland
500—800? Talið er víst, að hvalnum verði
gjörsamlega eytt með þessu háttalagi.
Kolaverkfallið.
Það hefur 28. þ. m. staðið í 4 vikur
og gert svo mikinn usla í öllum samgöng-
um og fjölmörgum iðnaðargreinum, að langt
líður, áður en Norður- og Vestur-Evrópa,
að minsta kosti, biða þess bætur.
Missagnir höfðu gengið af því i ensk-
um blöðum hvernig forsætisráðherra Breta,
Asquith, höfðu farist orð á sáltafundi milli
verkmanna og námueigenda. Herma sum
blöð, að hann hafi sagt, að lögákveðin
lágmarkslaun lcolaverkmanna ættu að eins
að vera fyrsta skrefið til þess að setja lág-
markslaun í fleiri iðnaðargreinum. í ræðu
í enska þinginu mótmælti hann, að sjer
hefðu farist þannig orð, en sagði að orð
sin til verkamanna hefðu fallið þannig:
»í dag eruð þjer komnir að því tak-
marki, sem þjer fyrir ári, fyrir sex mán-
uðum, já, meira að segja fyrir sex vikum
hafið talið ómögulegt að ná. Þjer hafið
fengið 65% af kolanámaeigendum lands-
ins til að fallast á, að það verður að lög-
ákveða hæfileg lágmarkslaun í yðar iðnað-
argrein. í*jer hafið fengið fulltrúana, sem
bera ábyrgð á stjórn landsins til að lýsa
j'fir því, að þeir sjeu sannfærðir um sann-
girni og rjettlæti þessa máls og að þeir
munu beita öllum ráðum, sem nauðsyn
krefur, til þess að fá því framgengt i öll-
um kolahjeruðum landsins«.
Mr. Asquith hefur og staðið við þessi
orð, því að nú hefur stjórnin lagt fyrir
þingið frumvarp um lágmark vinnulauna
kolaverkmanna. Þetta er einn sá stærsti
viðburður, sem gerst hefur í löggjafarsögu
nokkurs lands á siðari áratugum, þvi að
hjer fer löggjafarvaldið inn á svið, sem
um aldirnar hefur verið talið einkasjer-
málasvið einstaklinganna. Og gela hjer
mörg tíðindi og stór á eftir farið.
Skírteini
til deildarfjelaganna.
Stjórn Fiskiíjelagsins hefur ákveðið
að útbúa sjerstakt brjef, senr senda skal
öllurn deildarfjelögum, sem skírteini fyrir
þvi, að þau sjeu tekin upp i Fiskifjelag
íslands, sem deild. Brjef þetta verður
þannig gert, að á það verður skráð númer
og nafn deildarinar, nöfn stjórnenda henn-
ar, stofnunardagur, ár og meðlimafjöldi.
Prentsmiöjan Gutenberg.