Ægir - 01.10.1912, Page 1
5. árg
FiskisýDingin í Kaupmannahöín
sumariö 1912.
Eftir Bjarna Saimiindsson.
(Niðurlag).
Inni í aðalskálanum var einnig sýnt
mjög margt af ýmiskonar veiðarfærum og
veiðarfæra-líkönum (Modeller), sem ekki
voru mjög rúmfrek, björgunaráhöldum,
siglingafræðis-verkfærum, nokkuð af smá-
bátum og skipa-líkönum, olíufatnaði, riiat-
vælunr og ýmiskonar öðrum útbúnaði til
sjóíerða, aflaskýrslum og öðrum hagfræð-
islegum skýrslum, oft í myndum (grafisk-
um), en langmest bar þar á allskonar fisk-
afurðum, og var mörgu þar svo snildar-
lega fyrirkomið, að unun var á að horfa.
Jeg skal t. d. nefna hús, er Fjelag síldar-
slórkaupmanna í Kristjaníu sýndi. það var
alt úr fiskafurðum, stoðir allar og veggir
úr síldartunnum, þak úr saltfiski, gluggar
og gluggaumbúnaður úr lýsisglösuni og
niðursuðudósum. Einkum var norska deild-
in þarna mjög fyrirferðarmikil og marg-
breytileg, og var auðsjeð, að Norðmenn vildu
þar sýna, að þeir væru fremstir í fiski-
veiðum, eins og þeir lika eru, þegar litið
er á aíla og atorku eingöngu, eins og þeir
líka standa mjög framarlega í niðursuðu
og hagnýtingu úrgangs. Sýndu lijer bæði
heil fjelög (einkum úr Noregi) og einstakir
menn eða firmu. Mörg þessara nafna eru
vel þekl hjer heima, eru enda góðkunn
10 og II.
víða, og fara sýningu frá sýningu og geta
sjer alstaðar góðan orðstír; þau þurfa í
rauninni eigi að vera að sýna, því að vör-
ur þeirra eru víðast til sýnis í þeim versl-
unum, þar sem þesskonar vörur eru á
boðstólum. Jeg skal til dæmis nefna neta-
verksmiðjurnar »Danmark« í Helsingjaeyri,
Köbenhavns mekaniske Net- og Garnfabrik
(N. P. Utzon) Mariendalsvej 55, Köben-
havn F., Den norske Fiskegarnsfabrik,
Kristiania, Sjóklæðaverksmiðju Chr. Möllers,
Amaliegade 43, Kh., Matvöruverksmiðjuna
A/S De danske Vin- og Konservesfabrikker,
J. D. Beauvais, Lyngbyvej 83, Kh. L. og
niðursuðuverksmiðjurnar: Chr. Bjelland og
Co., Stavanger, Grebbestads Konserves-
fabrik, H. C. Ivindberg, Grebbestad, Sví-
þjóð og Sveriges forenede Konservesfabriker,
A/B Forshell Götaborg. Allar þessar verk-
smiðjur, cr jeg nefndi hlutu hæstu viður-
kenningu (heiðursskírteini[Æresdiplom] eða
gullpening), nema Möller silfurpening). Hj.
von Seheele & Wingárd, Ake, (iregrund,
Svíþjóð, sýndu meðalalýsi, unnið úr sels-
lýsi og á að geta komið i stað þorskalýsis.
Annars var eðlilega margt af því sem
var miður þekt, en vert að benda á og
gæti orðið oss að liði. Jeg vil t. d. nefna
s í 1 d a r k v e r k u n a r v j e 1 (með handafli)
frá Bryn Jernstöberi og mek. Værksted,
Kristiania; jeg lief áður minst á þessa vjel
(i Andvara 1906, bls. 141, neðanmáls) og
væri verl fyrir síldveiðendur vora að
kynna sjer betur kosli liennar. Neta-
riðsvjel sá jeg þar enga, en í sýningar-
ÆGIR
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS.
. Reykjavik. Okt. og nóv. 1912. |Nr.