Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1912, Blaðsíða 6

Ægir - 01.10.1912, Blaðsíða 6
111 Æ G I R ur og Bragi, eða Skúli og Jón forseti. Nei, lijer sást varla annað en mótorskútur, og mun jeg vikja lítið eitt að þeirn aftur, áður en lj'kur. Læt jeg svo að meslu úllalað um liina eiginlegu fiskisýningu og skal svo minnast dálítið á vjelasýninguna (mótorsýninguna), en jeg get verið stuttorður, bæði af því að jeg hef æði lítið vit á steinolíumótorum og öðrum gangvjelum, og svo var þar annar maður á sýningunni, sem færari var til þess að dæma um vjelarnar og segja frá þeim, nfl. Bjarni Þorkelsson, og vil jeg visa til fyrrgreindrar skýrslu hans um það efni; þar er margt vel sagt og vert að athuga. Skálinn með vjelasýningunni stóð, eins og jeg sagði frá í upphafi, úli við höfnina, og var gata á milli hans og sýningar- svæðisins. Hann var mjög stór, þó eigi nærri eins stór og aðalskálinn, og sneri framhliðinni út að höfninni, og þaðan var gengið inn þegar komið var með ferju- hátum hafnarinnar. Þar slóð fjöldi vjela um alt gólf (sýnendur voru þar 59) og hafði liver sýnandi einn reil af gólfinu; voru mjóir gangvegir milli reitanna, og mátti vel skoða vjelarnar frá öllum hlið- um. Margir sýnendur höfðu mann, sem gaf upplýsingar um vjelarnar og verk- smiðjurnar. Það var fögur sjón, að lita yfir allar vjelarnar skínandi bjarlar og fágaðar og tíðast margar í hreyfingu, en þeim fylgdi ekki sú oliufýla, sem vön er að fylgja olíuvjelum í bátum, því að úthlásturspíp- urnar lágu frá öllum vjelum, sem annars voru látnar ganga, upp um þakið, og þar með fvlgdi líka, að lítt varð maður var við hina vanalegu mótorskelli. Jeg ætla alls eigi að reyna að lýsa ein- stökum vjelum, en þess í slað telja upp helstu tegundir af vjelum, sem sýndar voru, og nefna verksmiðjurnar sem sýndu þær, og tilgreina verðlaunin er þær hlutu (i svigum). Á sýningunni var útbýtt lýs- ingu á mörgum af vjelunum með mynd- um af þeim. Má fyrst frægan telja, P. Jörgensens »Dan«-Motorfabrikker, Bragesgade 10, Ivh. L., nokkrar 4—35 HK. »Dan«-vjeIar fyrir steinolíu og sólaroliu (silfur). Samskonar vjelar 3—30 HK. sýndi Isidor Nielsens mek. Værksted, Throndhjem. — Maskin- fabrikken »Tuxham«, Valby, Köbenhavn, sýndi 8—68 HK. tvígengis-jarðolíuvjelar (gull). — Möller og Jochumsen, Horsens, sýndu 8—18 HK. Dieselvjelar fyrir jarð- olíu og steinoliu. — C. Ph. Seidelin, Told- bodvej 7, Kh., sýndi 10—15 HK. »Gardner«, benzín- og steinolíuvjelar. — Hassel & Teudt, Bredgade 43, Kh., sýndi 5—27 HK. »Wolverine«-vjelar. — A/s Völund, Bleg- damsvej 32, Kh. N., sýndi 2—35 HK. »Neptún«-vjelar fyrir sólarolíu (silfur). — Johs. Thornam, Nörre Farimagsgade 57, Kh., (Fritz Egnell, Stockholm) sýndi 2Vj —36 HK. »Penla«-vjelar fyrir benzín og steinolíu og 7 —10 HK. »Hexa«-vjelar fyrir jarðolíu (gull fyrir benzínvjelar, silfur fyrir hinar). — H. Hein & Sönner, Strömmen, Randers, sýndu 7—10 HK. »Diesel«- og sólarolíuvjelar (gull). — Hurup Jernstöberi og Maskinfabrik, Nyborg, sýndi 6—8 HK. brons-, jarðolíu- og steinolíu »Deutz«-vjeIar frá Deutz (Köln). — Scherwin & Schlúlter, Cilygade 21, Kh., sýndi l1/*—12 HK. »Evin- rude«- og »BuíTalo«-vjelar.— Rud. Kramper & Jörgensen, Horsens, (»Gideon«), sýndu 31/2—48 HK. Diesel-, sólarolíu- og sleinolíu- vjelar (bronzi). — Schripps Motor Co., Ny- liavn 33, Kh., sýndi 7—15 HK. »Schripps«- steinolíuvjelar. — Aachener Stahhvarenfa- hrik, Fafnir Werke, Aachen, sýndi 6—15 HK. tvigengis jarðolíuvjelar. — Swensons Motorfabrik, Hör, Svíþjóð, sýndi 3—8 HK. fjórgengis steinolíuvjelar. — A/S Roneo, Köbmagergade 67—69, Kh., sýndi »Thor-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.