Ægir - 01.02.1914, Síða 14
26
ÆGIR
stýrimanns. En þar með er ekki sagt,
að staða hans sje ljettari í framtíðinni,
og í öllu falli er óheppilegt fyrir ungan
mann, að sigla sem stýrimaður með slik-
um skipstjóra, því hann æfist og venst
stöðu sinni á margan hátt undir stjórn
þess manns.
Fyrsta skilyrði góðs samkomulags
rnilli skipsljóra og stýrimanns, er að síð-
arnefndi muni og nákvæmlega geri og
láti gera allar sldpanir skipstjórans, og
áríðandi er fyrir hann, til þess að vera
viss um að ekkert glejmiist, að rita þær
i minnisbók hjá sjer og jafnvel dag og
stund sem skipanirnar eru gefnar. Oft
geta skipanir þessar virst ósanngjarnar
og ef til vi 11 því nær ómögulegar að upp-
fylla; en jeg vil ráða mönnum til að gefa
þvi orði (ómögulegt) sem minstan gaum.
Ivomi það fyrir að ekki sje hægt að
uppfylla allar skipanir skipstjórans eins
og hann hefir fyrir sagt, er áriðandi fyrir
stýrimanninn að skýra honum frá hvers
vegna það ekki hefði verið hægt og ekki
koma með þannig lagaðar afsakanir, að
svo mikið hafi verið að gera, eða það
hafi gleymst, eða mjer leitst betur á að
gera svona eða þannig, eða mjer þótti
meiri nauðsyn að láta þetta eða hitl sitja
í fyrirrúmi.
(Framh.).
Heima
Á. árssfundi
Fiskifjelags íslands, sem haldinn var
hinn 3. febr. voru þessir fulltrúar fiski-
deilda mættir.
Guðmundur ísleifsson frá Háeyri fyrir
Eyrarbakka.
Þorsteinn Gislason á Meiðastöðum fyr-
ir Garðinn.
Jón Benediktsson frá Bildudal fyrir
Bildudal.
Sveinn Auðunsson frá Hafnarfirði fyrir
Hafnarfjörð.
Bjarni Ólafsson frá Akranesi fyrir
Akranes.
Sigurður Jónsson frá Akureyri fyrir
Akureyri.
Matth. ólafsson Haukadal fyrir Dýra-
fjörð.
Hr. Mattliías Olafsson
bju’jaði ferðir sinar sem erindreki Fiski-
fjelagsins, og fór til Vestmanneyja með
s/s »SterIing« hinn 6. þ. m.
Nýtt botnvörpuskip.
Hlutafjelagið »Njörður«, sem stofnað
var hjer i bæ fyrir nokkru, fjekk hið
fyrsta skip sitt hingað til lands sunnud.
8. þ. m. Skipið heitir »Njörður«, erþað
mikið skip, 130 fet á lengd og 23 fet á
breidd. Vjelin hefir 60 hesta afl og ferð
skipsins um 11 mílur i vökunni. Skipið
kom frá Fleetwood á Englandi og var
að eins 4 sólarhringa á þeirri ferð sinni
hingað. Skipstjóri er þar Guðm. Guðna-
son. Daginn sem skipið kom, var ýms-
um boðið að skoða það.
Ljóskastarinn Fenomen.
Umboðsverslun Nathan & Olsen hjer
i Reykjavik hefir nýlega fengið áhald,
sem hjer er áður óþekt. Það er Ijós-
kastari er sænskur hugvitsmaður hefir
fyrir skömmu fundið upp, og virðist svo,
að áhald þetta geti komið að góðum
notum hjer á landi.
Ljósáhald þetta kostar að eins 200 kr.
þar sem önnur ljósáhöld með sama Ijós-
styrk hafa kostað 1—2000 kr., svo ekki
má kalla það dýrt eftir gæðum. Það