Ægir - 01.01.1915, Síða 13
ÆGIR
11
skeið á hverjum stað fyrir sig. Æskileg-
ast væri það, að öllum þeim sem hafa
á hendi formensku eða stjórn á mó-
torum, sje gert að skyldu, að öðlast
skýrteini fyrir því, að þeir sjeu færir um
að gegna þvi starfi, sem þeir takast á
hendur.
Áformað var að halda námskeið í Vest-
mannaeyjum nú i desember, og í þeim
tilgangi fór jeg lil Vestmannaeyja, en þeg-
ar þangað kom, voru undirtektirnar svo
daufar, að að eins fáir menn gáfu sig
fram, hvað aðallega hefur verið orsök
þess, að undirtektirnar voru svona daufar,
er ekki gott að dæma um, en aðallega
var það af því, að menn voru sem
ákafast að undirbúa sig til róðra, en í
og með hefur áreiðaulega vantað áhuga
hjá þeim, sem aðnjótandi áttu að vera
að tjeðu námskeiði; en þess skal getið,
að flest allir útgerðarmenn þar, voru
eindregnir með því, að hafa námskeið,
og sýndu mikinn áhuga fyrir þvi, og
vonnðu, að þeir seinna, þegar belur væri
ástatt, yrðu aðnjólandi sliks námskeiðs,
sem þeim nú var lioðið, en ekki gátu
tekið á móti. O. S.
Haíhargarönr Vestuianneyinga stór-
skemdur.
Sunnudaginn milli jóla og nýjárs var
aftaka stormur i Vestmannaeyjum með
ólgubrimi. í þessu óveðri f'jell hafnar-
garðurinn, sem þar hefur verið i smið-
um siðastl. ár, að mestu niður. Sagt er
að tjónið nemi tugum þúsunda, og að
það lendi á hafnarsmiðnum Monberg.
Vjolarbátur ferst.
Vjelarbáturinn »Sæbjörg«, eign Páls
Árnasonar útvegsbónda á Seyðisfirði, lagði
al' sfað i miðjum nóvember síðastl. áleiðis
til Rvikur. Báturinn hrepti ofsaveður
fyrir Suðurlandi og varð tvisvar að snúa
við frá Ingólfshöfða til Fáskrúðsfjarðar,
þaðan sem hann lagði á stað i síðasta
sinn 24. nóv. Siðan hefur ekkert spurst
til Sæbjaxgar, og má því telja víst að
hún hafi farist. Fjórir menn voru á
bátnuin, formaður Bjargmundur Sig-
urðsson, og liafði hann i fjelagi með
nokkrum öðrurn, tekið bátinn á leigu
fyrst um sinn; Guðmundur Halldórsson
vjelstjóri og tveir aðrir Sunnlendingar.
»Sæbjörg« var 14Vs smálesl að stærð,
og váti-ygð í Samábyrð íslands fyrir
6 þúsund krónur.
Eini8kipaíjelag íslands.
Nú er búið að ákveða nöfn íslensku
eimskipanna. — Heitir Suðui'landsskipið
y>Gullfoss<.(, og hljóp það af stokkunum
23. janúar — hitt á að heila »Goðafoss«..
2 rauð Ijós.
Fróðlegt væri að vita, eftir hveijum
reglum hotnvörpuskipin islensku fara,
þegar þeu liggja fyrir akkerum með 2
rauð ljós, þegar kelillinn er hreinsaður.
2 rauð Ijós eru á battei'íisgarðinum. —
Getur þetta ekki verið hættulegt á Reykja-
víkurhöfn og viðar?
Skýrsla
hr. kaupmanns Páls Rergssonar á Öl-
afsfirði, sem hjer fer á eftir, sýnir hvað
mcnn gela, ef þeir vilja og hafa hug á
að safna slíku. Ótilkvaddur sendir hann
»Ægi« hina bestu skýrslu unx afla i hans
bygðarlagi, og væri óskandi, að lleiri
gjörðu slikt og hefðu það hugfast, að það
er lil góðs eins, og gæti orðið til þess
að breyta skoðun þeirra suður i löndum,
sem fiskinn kaupa hjeðan, að fiskifrjettir
frá íslandi sjeu markleysa ein, eins og
áður hefur verið getið um hjer í ritinu.