Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1918, Blaðsíða 21

Ægir - 01.05.1918, Blaðsíða 21
Ægir 81 þeim báðum; annar mótorbáturinn var eign Lúðvíks Sigurðssonar á Nesi í Norð- flrði, en hinn verslunar Örum & Wulffs á Fáskrúðsflrði. B. S. Ekki er öllu gleymt Jótt seiut komi. í síðasta tölubl. »Ægis« var því heitið, að birta björgun þá, sem varð og fram- kvæmd var h. 24. marz 1916. Á þetta hefir ekki verið minst og engin blöð hafa um þetta getið. Af tilviljun barst þelta í tal milli mín og annars manns fyrir rúm- um mánuði og kom okkur saman um, að birta þetta og leggja það undir dóm almennings, hvort slík verk séu ekki í það minsta þess verð, að aðstandendur þeirra er bjargað er, láti þess getið í blöðunum, öðrum til að breyta eftir og sem ofurlitla viðurkenningu þeim til handa, sem góð- verkið vinna og leggja líf silt í hættu til þess að hjálpa öðrum. Skýrslan um björgunina er á þessaleið: »24. marz 1916 réru 2 mótorbálar frá Stokkseyri fram á Selvogsbanka; veður var gott um morguninn, ca. 15 stiga frosl og logn, en nálægt kl. 11 f. h. kom snögg- lega bráðveður á norðan og herti frostið. M.b. Suðri, formaður Guðb. Grímsson, kom um kvöldið mikið klakaður og menn- imir byrjaðir að kala; hjá honum slitnaði lóðin strax og veðrið skall á, hélt svo heimleiðis án þess hann vissi nokkuð um hinn bátinn, m.b. Búa, form. Gunnar Ingi- mundarson. Hið sama veður var svo í 2 sólahringa og voru menn því hræddir um að hann hefði farist, þar til að fréllist til hans. M.b. Búi var að taka lóðina er veðr- ið skall á og slitnaði lóðin strax; hélt hann svo til lands að Krísuvíkurbergi til að komast í landvara heim. En nokkru eflir að hann var kominn undir bergið, og það á heimleið, birti til, því bylur var um tíma, og sá hann þá róðrarskip langt frá landi, kl. 1—2 síðd., með lítil segl uppi og rak það til hafs, veðrið svo mikið að þoldi næstum engin segl og engar líkur til að það næði landi, svo hann sneri við og elti það og dró það til Herdísarvíkur, því þaðan var skipið; lcorn þangað kl. 4 siðd. Formaður á því var Simon Bjarnason og 11 menn á því, orðnir þjakaðir af kulda og vonleysi um líf. Þeir er síðast náðu landi þar, sáu það reka til hafs, og löldu það þvi af. Þar eð orðið var svo áliðið dags áleist ekki fært að halda áfram heim, enda þótti gott í slíku veðri að vera kom- inn til lands, þótli ekki væri heima. Bóndinn í Herdísarvík, Þórarinn Árna- son, bauð öllum skipverjum, alls 7 mönn- um, til sín og hélt þá ríkmannlega í þá tvo sólarhringa sem þeir voru þar, án þess að þiggja nokkra borgun fyrir. Einn hásetinn á skipi því er bjargað var, vinnumaður séra Ólafs Magnússonar í Arnarbæli, fór heim til sín daginn eftir, og strax og liann kom heim, sendi séra Ólafur að Kaldað- arnesi til að síma hingað að Stokkseyri um livar báturinn væri«. (Ritslj.). Stýrimannaskílinn. Prófum við hann, sem byrjuðu 18. f. m. er nú lokið. Hið almenna slýrimannapróf tóku 26 og lilutu þær einkunnir er hér greinir: Árni Árnason...................... 75 slig Ástmann Bjarnarson ............... 85 — Björn Oddsson....................105 — Einar M. Einarsson................ 82 —

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.