Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 5

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 5
Nr. 6. ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLAND II. árg. | Rey kjaví k. J ú ni, 1918. yjirlit yjir vetrarvertíðina rið Faxaflóa 1918. Alt til þessa hefir þess verið getið í almanakinu hvenær vertiðir byrji og endi. Yetrarvertíð á Suðurlandi er talin að byrja á Kindilmessu (2. Febr.). Eiga þá vermenn að vera komnir í skiprúm og mun svo enn tíðkast, þar sem um opin róðrarskip er að ræða, en þau liafa svo mjög týnt tölunni hina 2 síðustu ára- tugi, að þau eru orðin i miklum minni- hluta og ráðning fólks til skiprúms minna bundið við vissan dag. Meiri hluti fiskibáta er nú knúinn áfram með vélum og byrja þeir vertíðina þegar nokk- ur von er að fiskur sé kominn á miðin og má nú reikna vetrarvertiðarbyrjun hér sunnanlands fyrsta gæftadag eftir nýár. Um nýársleitið i ár voru horfur öðru- vísi en þær hafa áður verið og vonandi verða eigi framar. Alt sem til útgerðar þurfti, var afskaplega dýrt og útlit fyrir skort á bæði olíu og salti og þar við bættist að fiskverð var óvíst og það svo mjög að útgerðarmenn gátu ekki reinkað út hvort þeir mundu tapa, standa í stað eða græða. Ensku samningarnir frá 1917 giltu ekki fyrir árið i ár og engir nýir samningar fyrir eða þeir gömlu endur- nýjaðir. Að semja varð, var flestum ljóst og menn höfðu þá von, að með því að geta fært sönnur á það, að allt, sem til útgerðar heyrði, hefði hækkað svo i verði hið síðasta árið, gætu þeir fengið það verð fyrir fiskinn, sem að einhverju eða öllu leyti væri i samræmi við þá hækk- un. Þetta var vonin og í henni var byrj- að. Eins og að undanförnu, söfnuðusl þegar eftir nýár mótorbátar frá ýmsum stöðum að Sandgerði, reru þaðan og seldu afla sinn þar og í Rejdcjvík, en þá, þegar í verið var komið tóku við hinar miklu frosthörkur skömmu eftir nýárið og gæftaleysi, sem mjög dró úr aflanum, þvi vissa var fyrir því, að fiskur var nógur hvar sem leitað var, en margir dagar féllu úr til að ná í aflann vegna gæftaleysis. Fyrstu fimm daga ársins var hér blíð- viðri en á þrettándanum var stórviðri á norðan með 18—20 stiga frosti, sem hélst til þess 9. þá var aðeins 4 stiga frost, en hinn 10. hvesti hann aftur á norðan með hinni mestu frosthörku og dró fyrst úr frostinu hinn 17. janúar, en það herti aftur hinn 18. og komst upp í 29 stig að sagt var sunnudag 20. Hinn 24. janúar var vindur hægur að austan og frostlaust og gott veður úr þvi út mánuðinn. Þar eð höfnin var manngeng orðin hinn 7. janúar og Sterling var sagaður út hinn 15., má geta nærri, að þeim mörgu mótorbátum, sem á höfn- inni lágu innifrosnir voru allir vegir bannaðir. í febrúar var vonskuveður í 11 daga

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.