Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 13

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 13
ÆGIR 93 1. gr. Skylt er kaupmönnum, félögum, útgerðarmönnum, og öðrum að bjóða útflutn- ingsnefnd þeirri, sem skipuð var af stjórnarráðinu 3. þ. m. til söluráðstafana eftir- greindar íslenzkar afurðir, sem framleiddar eru á yfirstandandi ári og eigi þurfa beinlínis til heimanotkunar hér á landi. 1. fiskur alskonar 2. sild, 3. lýsi, 4. þorskahrogn, 5. fisk- og síldarmjöl, 6. kindakjöt, 7. ull, 8. gærur. Bjóða skal útflutningsnefndinni greindar afurðir eins fljótt og auðið er, og ekki siðar en tveim mánuðum eftir að framleiðslu þeirra er að fullu lokið. 2. gr. Bannað er kaupmönnum, félögum, útgerðarmönnum svo og einstökum mönn- um að flytja til útlanda eða selja til útlanda eða gera samninga um sölu til útlanda á.islenzkum afurðum, sem greindar eru í 1. gr. þessarar reglugerðar og framleiddar hafa verið á yfirstandandi ári. 3. gr. Afurðir þær, sem greindar eru í 1. gr. reglugerðar þessarar og framleiddar hafa verið á yfirstandandi ári og eigi þurfa beinlínis til heimanotkunar hér á landi, má enginn hafa í vörslum sínum hinn 28. febrúar 1919, nema umboðsmaður stjórna Bandamanna eða útflutningsnefnd. Ennfremur er að sjálfsögðu vítalaust að geyma umræddar afurðir fyrir um- boðsmann stjórna Bandamanna eða útflutningsnefnd. 4. gr. Nú vill eigandi eða umráðamaður afurða þeirra, sem greiddar eru í 1. grein þessarar reglugerðar og framleiddar eru á yfirstandandi ári, ekki selja þær því verði og með þeim skilmálum, sem síðar verða auglýstir af útflutningsnefnd, og skulu þá afurðirnir teknar eignarnámi. 5. gr. Útflutningsnefnd auglýsir á þann hátt sem hentugast þykir, nánari fyrirmæli og reglur um sölu, söluskilmála og söluframboð á afurðum þeim, sem reglugerð þessi ræðir um. 6. gr. Lögreglustjórar skulu, hver i sínu umdæmi, liafa stöðugar gætur á því, að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.