Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 23

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 23
ÆGIR 103 Alt lýsi, sem talið er meðalalýsi, og ekki lýtur þessum skilyrðum, skal flokkað sem iðnaðarlýsi. Frá andvirði alls annars lýsis en meðalalýsis, verður dregið hlutfallslega mið- að við það, hve mikið sje i þvi af efnum umfram l°/'o, sem ekki geta orðið að sápu. 11. gr. Það er ófrávikjanlega nauðsynlegt, að hver seljandi sjái um að hans lýsistunn- ur sjeu í hvert sinn merktar á báðum botnum þannig: Merkja skal fyrst einkennisstafi seljanda, ekki færri en 2, og þar undir einn upphafsstaf er tákni lögheimili seljanda. Neðar á báðum botnum skal merkja Rinn staf (A—F) er tilheyri þeim flokki er lýsið greinist i af matsmönnum. Við hliðina á þeim bókstaf skal setja tölustaf, og bókstaf þar sem það á við, sem tákn- ar gæðastig lýsisins, innan aðalflokksins eftir matinu. Dæmi: Fyrsta flokks gufubrætt meðalalýsi merkist A. I. A., en annars flokks gufubrætt meðalalýsi merkist A. I. B., en hrátt meðalalýsi merkist A. 2. Ljóst iðnaðarlýsi merkist B. I., en ljóst súrlýsi merkist B. 2. A. Ljóst gufubrætt hákarls- lýsi merkist E. I. og ljóst pottbrælt hákarlslýsi merkist E. 2. Þykt pressulýsi merk- ist F. o. s. frv. Það er mjög áriðandi að liturinn, sem merkt er með, sje sem minst afmáanlegur, til þess að koma í veg fyrir, að nokkur seljandi geti mist við- bótarandvirðið vegna þess að merki hans þekkist ekki. Ef lýsið verður flutt út ógreinilega merkt, er það á ábyrgð seljanda og getur hann átt á liættu að jafnvel ekkert verði borgað út, ef slikar athugasemdir koma á farmskrána. 12. gr. Komi það fyrir seinna meir, að fulltrúi Bandamanna afsali forkaupsrjetti sín- um, má útflutningsnefndin flytja vöruna út til viðtakanda í löndum Bandamanna, Bandarikjanna i Norður-Ameriku, eða til viðurkendra viðtakenda í viðurkendum hlutlausum löndum að áliti Bandamanna. Um þessa vöru gilda þó sömu reglur og ákvæði, sem þegar eru tekin fram. Fulltrúi Bandamanna hefir fallist á fyrst um sinn að sinna öllum framboðum, sem kunna að koma á allskonar lýsi, samkvæmt þessum reglum. Reykjavík, 12. júni 1918. Thor Jensen, Pjetur Jónsson. p. t. formaður. Ó. Benjaminsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.