Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 15

Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 15
ÆGIR 95 ■ReÉiuÉerð um innflutning á vörum. Samkvæmt heimild á lögum nr. 6, 8. febrúar 1917 um heimild handa lands- stjórninn til ráðstafana til tryggingar aðflutningum til landsins, eru hér með sett eftirfarandi fyrirmæli: 1. gr- Engar vörur má flytja hingað til lands frá útlöndum nema til þess sé fengið leyfi innflutningsnefndar þeirrar, er skipuð var 3. þ. m. Frá þessu eru þó undan- skildar þær vörur, er landsverslúnin fyrir hönd landsstjórnarinnar sér um að fluttar séu til landsins. Innflutningsnefndin hefir skrifstofu í Reykjavík. 2. gr. Þeir sem vilja fá leyfi innflutningsnefndar til þess að flytja vörur til landsins skulu, um leið og þeir snúa sér til hennar, gefa upplýsingar um vörutegundir þær og vörumagn er þeir vilja fá innflutningsleyíi fyrir, svo og hvaðan vörurnar eiga að koma og ákvörðunarstaðinn hér á landi. Ennfremur er vöruinnflytjendum skylt að gefa innflutningsnefndinni skýrslur yfir þær vörutegundir og vörumagn, er þeir hafa flutt til landsins næstliðin 3 ár, 1915, 1916 og 1917, og að öðru leyti að við- lögðum drengskap láta henni í té þær frekari upplýsingar, gögn og staðfestingar, er hún kann að óska. 3. gr. Innflutningsnefndin má ekki veita innflutningsleyfi nema um takmarkaðan tima og gegn því að sá, er flytja vill inn vörur, skuldbindi sig til að afhenda inn- flutningsnefndinni eftirrit af hverjum vörureikningi (factura) jafnskjótt og vörurnar koma til landsins og vörureikningarnir koma i hans hendur. 4. gr. Þegar vörureikningar frá útlöndum eru aíhentir samkvæmt 3. gr.; skal jafn- framt greiða innflutningsnefndinni 1 af hundraði af fjárhæð hvers vörureiknings sem borgun fyrir innflutningsleyfið, þó aldrei minna en 2 kr. 5. gr. Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar, varða sektum alt að 100000 kr., enda varði brotið ekki [þyngri refsingu að lögum. Vörur þær, sem eru fluttar til

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.