Ægir - 01.06.1918, Blaðsíða 14
94
ÆGIR
fyrirmælum reglugerðar þessar sé stranglega fylgt og ber þeim að tilkynna stjórnar-
ráðinu tafarlaust með simskeyti þegar uppvíst verður um brot gegn fyrirmælum
hennar. Skulu þeir þegar i stað gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að komast
fyrir ætluð brot og hefja rannsókn út af brotum eins fljótt og fært þykir.
7. gr.
Brot gegn ákvæðum 1., 2. og 3. gr. reglugerðar þessarar varða sektum alt að
500,000 kr. Ennfremur skal jafnan, auk sekta, greitt tvöfalt andvirði afurða þeirra,
sem ekki eru boðnar útilutningsnefnd til söluráðstafana, eða íluttar til útlanda, eða
rejmt að ílytja til útlanda, eða seldar til útlanda, eða gerðir samningar um sölu til
útlanda, eða eru i vörslum manna eða félaga 28. febrúar 1919 og eru allar slíkar
afurðir að veði fyrir sektunum.
8. gr.
Með mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal fara sem almenn lög-
reglumál.
Áður en dómari úrskurði sektir, án þess að mál fari fyrir dóm, skal málið
borið undir stjórnarráðið.
9. gr.
Verði ágreiningur um skilning á ákvæðum þessarar reglugerðar, sker stjórnar
ráðið úr ágreiningnum.
10. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi þegar í stað og fellur jafnframt úr gildi reglugerð
um ráðstafanir til að tryggja verslun landsins frá 22. april þ. á. svo og auglýsing
útg, 24. mai þ. á.
Þetta er birt öllum þeim til eftirbreytni, sem hlut eiga að máli.
I stjórnarráði íslands, 10. júni 1918.
Siguréur donsson.
Oddur Hermannsson.