Ægir - 01.08.1918, Blaðsíða 22
142
ÆGIR
verkleg þekking er nálega úr sögunni
hér og vita að þeirra er þörf heim aftur
og að þar verði vel tekið a móti þeim
— það verður siður þegar kaupið hefir
verið dregið af þeim og nöfn þeirra
standa i svörtu bókinni um horð, því
það hefir dregið kjark úr mörgum manni.
22. ágúst 1918.
Sveinbjörn Egilson.
Gufumótor.
UppgötTun Ellehamniers.
Svo sem getið hefir verið i símskeyti
í Mbl., hefir danski hugvitsmaðurinn
Ellehammer fundið upp gufumótor, sem
fleslir ætla að útrýma muni sprengi-
mótorum þeim, sem nú eru notaðir.
Nú vita llestir það, að katlar gufuvéla
eru eigi litlir fyrirferðar, — en Elle-
hammer hefir alveg slept kötlunum, og
notar þá aðferð, að dæla vatni í gusum
inn í liólk, sem hitaður er með mótor-
lampa. Yélin notar eigi meira vatn held-
ur en venjulegur kælir á biíreiðum, og
vatnið er notað aftur Ö'g aflur, eins og í
kælinum. Vélin er 3. cylindra, en hefir
afi á við G cylindra sprengimótor, en er
eigi þyngri né stærri fyrirferðar en venju-
legur benzinmótor.
Einn af aðalkoslunum við mótor Elle-
hammers er sagður vera sá, að nota megi
hinar óvönduðustu hráolíur til brenslu,
og verður vélin á þann hátt mjög ódýr lil
notkunar. það er jafnvel sagt, að í Nor-
egi, þar sem farið er að nota vélar þess-
ar, hafi verið gerðar tilraunir með lauf
og tréspæni til upphitunar. Vélina má
setja i hreyfingu þegar mótorlampinn
hcfir hitað hana i 2—3 mínútur.
Auk þessa hefir gufumótorinn þann
mikla kost, að honum er stjórnað með
einu einasta handtaki. Það má láta hann
taka öfuga snúningssveiflu hvenær sem
er og lakmarka snúningshraðann eftir
vild með þessu eina handtaki. Hreyfingin
er jöfn og stöðug, og það er sagt, að
mótorinn geli afkaslað miklu meiru en
benzinmótor. Sérfræðingar, sem séð hafa
mótorinn, álíta svo vandalaust að fara
með hann, að það geti hver maður gert.
Verkfræðingar, sem hafa grandgæfilega
skoðað vélina, dást mjög að henni. Er
það fullyrt, að dráttarvélar (Tractors),
sem beitt er íyrir plóga, og ýms önnur
jarðyrkjuverkfærj, þurfi eigi að kosta
nema svo sem þriðjung af núverandi
verði, þegar gufumótorinn komi til sög-
unnar. Dráltarvélar verða þá svo ódýrar,
að sinábændum ælli að verða kleift að
afla sér þeirra.
Þá er og talið að gufumólorinn muni
hafa stórmikla þýðingu fyrir fiskveiðar,
því að hann verði miklu heppilegri i
báta heldur en venjulegir sprengimótorar,
ódýrari, traustari, endingarbetri og auð-
veldari til meðíerðar.
Það má bezt sjá það á þeim viðtökum,
er gufumótorinn hefir fengið hjá helzlu
mótorfræðingum á Norðurlöndum, hvert
álit menn hafa þar á honum. Firmað
Nielsen & Winther hafa keypt einkaleyfið
á uppgötvuniuni í Danmörk og sölurétt
til Rússlands og Argenlína fyrir ofijár.
Auk þess hefir Ellerhammer selt upp-
götvunina firma nokkru í Frederikslad í
Noregi og Emmissionsbolaget i Stokk-
hólmi fyrir miklu hærra verð heldur en
gefið hefir verið áður fyrir nokkra upp-
götvun á Norðurlöndum.
Ellehammer segir sjálfur frá því, að
sér hafi fyrst komið það til hugar í
fyrra, að reyna að finna upp gufumótor.
Hann var þá staddur vestan liafs og
kom til bifreiðaverksmiðju Fords. Vél-