Ægir - 01.10.1918, Blaðsíða 5
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS
II. árg. | Reykjavi k. 0 k„tó ber. 1918. ~~J Nr. 10.
■Reglur o£ leiðbeiriiriÉar
um
sölu og útflutning á saltaðri síld.
(Tilkynning nr. 8, frá Útflutningsnefndinni).
1. gr.
Samkvæmt auglýsingu Stjórnarráðsins, dags. 3. júní þ. á., eiga allir síldarfram-
leiðendur að bjóða Útflutningsnefndinni til söluráðstafana alla þá síld, sem veidd
er og ætluð til útflutfiings, og gilda þar að lútandi eftirfylgjandi reglur.
2. gr.
Alþingi hefir með lögum 30. júli þ. á. heimilað landsstjórninni að kaupa af
framleiðendum 100,000 áfyltar tunnur af sild, sem veiðst hafa hér við land af inn-
lendum mönnum á timabilinu 15. júlí til 15. september þ. á., með þeim reglum
og skyldum, sem lög þessi mæla fyrir. — Af síld þessari hefir landsstjórnin, sam-
kvæmt heimild í samningi við Bandamenn, þegar selt til Svíþjóðar 50,000 áfyltar
tunnur með því skilyrði, að siglingarleyfi fáist héðan beina leið til Svíþjóðar. Það
sem framleiðendur kunna að hafa meira, er ennþá óráðstafað, en verður selt við
fyrsta tækifæri þar sem best verð fæst og flutningur leyfist til.
3. gr.
Samkvæmt 1. gr. ber hverjum frambjóðanda, er njóla vill og getur haft kröfu
til itaka í þessari sölu, að tilkynna Útflutningsnefndinni, hve margar áfyltar sildar-
tunnur þeir hafa framleitt á timabilinu 15. júlí lil 15. september þ. á., til þessa
augnamiðs, og hvar þær séu geymdar. Ennfremur skulu frambjóðendur tilkynna
Útflutningsnefndinni, hvort þeir ætli lil úttlutnings alla þá síld, er þeir hafa aflað
eða hér eftir kunna að afla til 1. október þ. á. Síld, sem kann að verða framleidd
eftir þann tíma, verður eigi tekin til greina undir þessum reglum. Framboð þau
og tilkynningar, er hér ræðir um, sendist Útflutningsnefndinni sem fyrst og eigi
siðar en 10. október n. k.