Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1918, Blaðsíða 16

Ægir - 01.10.1918, Blaðsíða 16
160 ÆGIR flutnings- og ábyrgðargjaldi til útlanda svo og miðilsgjaldi. Sendandi vöru er skyldur að gefa lögreglustjóra vottorð að viðlögðum drengskap, um söluverð og söluskilmála. Ef vara sú, sem farm- sldrteini ræðir um, er send óseld, skal lögreglustjóri ákveða stimpilgjaldið ettir þvi sem ætla má að varan sé verð með umbúðum flult um borð. Ef afgreiðslu- maður lætur fyrirfarast að sjá um, að farmskirteini sé afhent til stimplunar, varðar það alt að 5000 kr. sektum. Nú verður uppvíst, að stimpilskyldu skjali er skotið undan stimplun, eða verðhæð skjals, sem er stimpilskylt, er sett lægra en rétt er, til þess að svikjast undan gjaldi, eða ósannar skýrslur eru vísvitandi gefnar í sama skyni, og skal þá greiða fult gjald og auk þess sekt, er sé að minsta kosti fimmfalt hærri en stimpilgjaldið eða gjaldmunurinn. Sekt- ina ákveður valdsmaður með úrskurði er áfrýja má til æðri réttar. Ákvörðunum þeim og úrskurðum, sem löglegur innheimtumaður stimpilgjalds gerir um stimpilskyldunu eða upphæð gjaldsins, má áfrýja til stjórnarráðsins, en þó er eigi síður heimilt að leggja málið fyrir dómstólana. Lög þessi gilda fyrst um sinn til árs- loka 1921. Þau varða allar afgreiðslur, sem stimpilskylda er bundin við, ef af- greiðslu er beiðst eftir að þau koma í gildi, án tillits til þess, hvenær skjal er sett og samið. Þegar stimpilfrjáls skjöl eru afhent til afgreiðslu vegna framsals oða áteiknunar, skal reikna stimpilgjaldið eingöngu eftir framsalinu eða áteiknan- inni. Heima. Fiskifélagið. Hinn 29. september, lagði erindreki Matth. ólafsson á stað með »Gullfoss« áleiðis til Ameríku. Á hans vegum var Jón Einarsson frá Stykkis- hólmi, sem Fiskifélagið veitir styrk til þess að kynna sér fiskverkun Ameriku- manna og hagnýting þeirra á fiskiúrgangi. Hinn 23. seplember, lagði Sveinbjörn Egilson, fram bréf á stjórnarfundi og var efni þess, að leitast fyrir, hvort stjórnin vilki styrkja að einhverju leyti námskeið fyrir háseta hér í Reykjavík, sem hann ásamt 2 öðrum mönnum, ætlar að byrja hinn 15. október. Lagði hann um leið fram áætlun um fyrirkomulag nám- skeiðsins, Undirtektir stjórnarinnar voru hinar beztu. Vill hún styrkja fyrirtækið þegar því er fullnægt, sem tekið er fram í áætluninni. Sömuleiðis styrkir félagið sjómanna- námskeið í Vestmannaeyjum. ólafnr Sveinsson vélfræðingur, heldur nú mótornámskeið á Isafirði. Porsteinn Júl. Sveinsson kom úr ferð sinni kringum land hinn 30. september með Sterling, og hirtist skýrsla hans um þá ferð í þessu tbl. »Ægis«. Kötlngos, ógurlegt, byrjaði 12. Októ- ber, kl. 2 e. h. Peir sem gerast ætla kaupendur ad „Æ3GrI“ næsta ár eða frá nýjári, eru á- mintir um að tilynna það á af- greiðslu hans hið fyrsta. Pranesrniðjan Gutenberg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.