Ægir - 01.10.1918, Blaðsíða 8
152
ÆGIR
2. gr.
Brot gegn ákvæðum 1. gr. reglugerðar þessarar varða sektum alt að 500,000
krónum. Bæði sá, sem selur eða lofar að selja vörur þær, sem greindar eru í 1.
gr. og á þann hátt, er þar greinir, og sá, sem kaupir eða lofar að kaupa þær, skal
sekur talinn við ákvæði þessarar reglugerðar. Hið selda eða umsamda er að veði
fyrir sektunum.
3. gr.
Með mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal fara sem almenn lög-
reglumál.
Áður en dómari úrskurðar sektir, án þess að mál fari fyrir dóm, skal málið
borið undir stjórnarráðið.
4. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi þegar í stað.
Þetta er birt öllum þeim til eftirbreytni, sem hlut eiga að máli.
í stjórnarráði íslands, 3. október 1918.
Sigurdur Jónsson._______________________________
Oddur Hermannson.
Áhrif árstíðanna á líf
nytsemdarfiska vorra.
Eftir Bjarna Sæmundsson.
(Frh.).
Þriðji fiskurinn er síldin. Hún er stærst
þessara ætiflska, enda er hún hvorltveggja
í senn, ætifiskur og nytsemdarflskur í
hæsla máta, eins og oss íslendingum fer
nú að verða sæmilega ljóst úr þessu.
Hún lifir, eins og þegar hefir verið vikið
að, á allskonar smælki; fiskaseiðum,
smásandsili, smokkfiskaungviði, krabba-
dýrum af smærra tægi, svo sem augna-
síli, ögn og krili, en bezta íæða hennar
og sú sem hún fitnar mest af, er smá-
átan og þá einkum síldarátan eða rauð-
átan (Cal. finnmarchicus). Síldin gýtur
aðeins í heitari sjónum við suður- og
suðvesturströndina og dreifir sér á vet-
urna viðsvegar út um haf, þar sem hún
þá helst mun finna æti, sem þó líklega
mun vera af skornum skamti. Yerður
vart við síld fyrir suðurströndinni snemma
á vetrarvertíð, en tíðast fremur strjál og
er þá oft í fiski. Þegar kemur lengra
frara á, fer hún að verða þéttari og fer
víst að gjóta snemma í april, en úr því
að kemur fram í maí, fer að bera mikið
á henni í Jökuldjúpi og kringum Jökul-
inn (Snæfellsnes). Er þetta alt stórsíld
(hafsíld), meðtóman maga, mjög mögur,
en með mjög þroskuð hrogn og svil, og
gýtur eílaust á þessum slóðum og sjáll'-
sagl miklu víðar suður og austur, þó að