Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 17

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 17
ÆGIR 67 II. V.itryggingarnefndin skýrði frá því, að hún gæli ekki að svo stöddu lagt fram nefndarálit, en lagði til: »að fela fulltrúum fiskideildanna að leitast fyrir hjá mótorbótaeigendum, hvort þeir vilji leggja í prívat ábyrgðarfélag hlutabréf, er nemi frá 100—500 kr. fyrir hvern bát, og verði síðan það hlutafé notað sem stofnfé félagsins. Fulltrúarnir skýri siðan vátryggingarnefndinni frá árangri þessara umleitana«. Var þetta samþykt i einu hljóði. Fleiri mál komu ekki til umræðu, og sagði þvi forseti þessu þingi slitið. Jul. Havsteen, forseti. Karl Nikulásson skrifari. Skýrsla l'rá Fjórðungsþingi fiskideilda Austfirðingafjórðungs. Ár 1919 mánudaginn 5. maí var Fjórð- ungsþing fiskideilda Auslfirðingafjórðungs sett í Barnaskólanum á Eskifirði. korseti Fjórðungsþingsins, IngvarPálma- son, selti þingið. t*essir fulhrúar voru mættir: !• Bjarni M. Sigurðsson fyrir Eskifjarðar- deild. Jóhann Þorvaldsson fyrir Eskifjarðar- deild. 3. Ingvar Pálmason fyrir Norðfjarðar- deild. 4. Sigurlínus Stefánsson fyrir Norðfjarð- ardeild. 5. Hermann Porsteinsson fyrir Seyðis- fjarðardeild. 6. Vilhjálmur Árnason fyrir Seyðisfjarð- ardeild. 7. Sveinbjörn P. Guðmundsson fyrir Reyðarfjarðardeild. 8. Sigurður Eiríksson fyrir Mjóafjarðar- deild. Fyrir deildina, á Fáskrúðsfirði mætti enginn. Pessi mál voru tekin til meðferðar: I. Vitamál. Þingmaður Sunnmýlinga, Sveinn Ólafs- son frá Firði, var mættur á þinginu og gaf upplýsingar um, hvað stjórnin hefði þegar gert í vitamálum fyrir Austfirðinga- fjórðung. Eftir nokkrar umræður var kosin þriggja manna' nefnd til þess að gera og leggja fram tillögur í málinu. — Kosningu hlutu: Bjarni Sigurðsson með 7 atkv. Hermann Porsteinsson — 6 — Ingvar Pálmason — (5 — II. Vetrarliafnir á Austurlandi. Eftir allmiklar umræður var samþykt tillaga um að kjósa þriggja manna nefnd í málið og hlutu þeir kosningu: Bjarni Sigurðsson með 7 atkv. Ingvar Pálmason — 4 — Vilhjálmur Árnason — 4 — Eftir fundarhlé, sem var í 4 líma, þá lagði nefnd sú, er kosin hafði verið í viia- málinu, fram svohljóðandi lillögur, sem voru samþyktar í einu liljóði. 1. Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag íslands að beitast fyrir því, að á næstu fjárlögum Alþingis verði veilt fé til byggingar hornvita á Papey og Streitishvarfi. Ennfremur að veilt verði fé til byggingar hornvita á Hrómunds- ey og Kalstaðatanga, gegn því, að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.