Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 25

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 25
ÆGIR 75 eiga hlut að máli, og er það ilt, þar sem um slíkt nauðsynja- og þjóðþrifamál er að ræða. Eg mun koma með sérstaka áætlun um framkvæmdir í þessu máli, sem ég vona að háttv. stjórn síðan leggi fyrir Fiski- þingið. Reykjavík 20. maí 1919. 01. Sveinsson. Skýrsla um hákarlaveiði með lóða-m.s. „Sjöstjarnaní£ 1917. »Sjöstjarnan» er nýtt mótorskip, sem hlutafélag á Akureyri keypti frá Danmörku 1916. Stærð 54 ton. Vél: 68 upp í 84. hk. Söbstad heitir norskur síldarútvegsmaður a Siglufirði^ sem lengi hefir verið þar bú- settur, duglegur og áræðinn atorkumaður. Rann leigði »Sjöstjörnuna« eftir nýár 1917, iil þess að halda henni út til hákarlaveiða með lóð. Skipstjóri var Jón Björnsson meðeigandi skipsins, en formaður við Veið- ina var ráðinn Sæmundur Sæmundsson á Hjalteyri, sem vanur er hákarlaveiði og formensku á fiskiskipum. Hann hafði fengið upplýsingar um hákarlaveiði með lóð bjá norskum manni, en í Noregi kvað sn veiðiaðferð vera byrjuð fyrir fáum ár- una. Söbstad hafði og hjá löndum sínum fengið glögga lýsing af þessari veiðiaðferð eg hafði hann forsögn á uppsetning há- karlalóðarinnar og öðrum útbúnaði til veiðifararinnar á »Stjörnunni«. Utbúnaði hákarlalóðarinnar er lýst á Þessa leið: Strengurinn er úr mjóum manilla-kaðli V/2 þi. utan um sig. Á strenginn voru taumarnir knýttir á þann hátt, að auðvelt væri að leysa þá af, ef lóðin ílóknaði, 10 faðmar voru hafðir milli tauma (Norðmenn kváðu stundum hafa 15 faðma. Taumurinn er hafður þrír til fjórir faðmar á lengd. (Lengd hans er nokkuð höfð eftir borðhæð skipsins, sé taumurinn of stuttur eftir borðhæð og veltu skipsins í sjógangi er meiri hætta á að hákarlinn slitni af önglinum, ef taumur- inn fer að toga hann yfir sjávarflöt, áður en í hann er borið). Við strenginn er fyrst stúfur úr 1 þl. kaðli til þess að auðvelt sé að knýta og leysa hann af strengnum. Þá tekur við vír, bæði var hafður benslisvír eða tveir þættir samansnúnir úr hæsivír (þótti sá síðarnefndi betri), í auga á vírn- um var kaðaltaumendinn knýttur. Neðan í vírnum og næst önglinum er um 1 al- innar löng, grönn hlekkjafesti. Auga er á önglinum og hann kræktur í festina. Milli festarinnar og vírsins er góður sigulnagli, sem getur snúist eftir því sem hákarlinn snýst í kringum tauminn. Festin er aðal- lega höfð fyrir ofan öngulinn í þeim til- gangi að hákarlinn vinni síður á henni (bíti hana síður sundur en vírinn). Sæ- mundur sagðist þó ímynda sér að vír dygði í öllum qeðri hluta taumsins, en eigi mætti gleymast að hafa sigulnagla í taumnum svo hann gæti snúist. Önglarnir voru á stærð við haukalóðaröngla, en mættu líklega vera heldur stærri. Lóðina má hafa 1000 til 1500 faðma langa til þess að leggja 100 til 150 öngla í einu. Lengri línan lögð þá gott er veður en styttri í slæmu veðri. Lóðin er stytt og lengd með því að leysa frá eða hnýta við nokkuð af strengnum. 35 til 50 pd. dreki er á báðum endum lóðarinnar. Uppistaða á endanum er úr þumlungs kaðli að ofan en gildari kaðli neðstu 50 faðmana. Hún mundi að ofan ef til vill mega vera úr 6 pd. færi. Bezt hún sé sem grenst vegna strauma aðeins nægilega sterk. Stórir belgir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.