Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 18
68
ÆGIR
héraðið byggi vita á Gleðivíkurtanga
samkv. uppdrætti G. Hliðdals.
2. Fjórðungsþingið leyfir sér að skora á
lireppsnefnd Geithellnahrepps að leggja
fram eða útvega fé til byggingar horn-
vila á Gleðivíkurtanga við Berufjörð
samkv. uppdrætti G. Hlíðdals.
IJá kom nefnd sú er kosin var í málinu
4
velrarha/nir á Austurlandi fram með til-
lögur sínar og voru þær eftir miklar um-
ræður bornar upp og samþyklar með öll-
um greiddum atkvæðum.
1. Rar sem á Austurlandi eru, nú sem
stendur, frá 90—100 vélhátar, sem
ekki geta stundað vetrarfiski þar,
annarsstaðar en á Berufirði og Horna-
firði, skorar Fjórðungsþingið á Fiski-
félag íslands að hlutast til um það,
að Alþingi veiti landsstjórninni heimild
til þess að lána þeim útgerðarmönn-
um, er þess óska, fé úr viðlagasjóði,
til þess að kaupa efni til byggingar
verskála lil vetrarúlhalds á Beruíirði
og Hornafirði, gegn veði i bygging-
unni, með 20 ára jafnri afborgun og
5 °/o vöxtum.
2. Jafnframt skorar Fjórðungsþingið á
Fiskiþing íslands að hlulast til um
það, að Alþingi veili fé lil þess að
ljósmerki verði selt til leiðbeiningar
við innsiglingu um Hornafjarðarós og
svæðið framundan svonefndri Ægis-
síðu verði dýpkað með því að fjar-
lægja lausan jökulleir, sem þar hefir
safnast saman, til þess að tryggja
lægi vélbáta. Leggur Fjórðungsþingið
áherzlu á, að þessar umbætur verði
framkvæmdar á þessu sumri.
Ennfremur kom frain og var samþykt
svohljóðandi tillaga:
Fjórðungsþingið lætur í ljósi óá-
nægju sína yfir því, að ekki hefir
verið birt álit hafnarverkfræðings
þess, er landsstjórnin sendi á síðast-
liðnu sumri til að rannsaka vetrar-
hafnarstæði á svæðinu milli Beru-
fjarðar og Skinneyjarhöfða.
III. Vélstjóraskóli.
Eflir töluverðar umræður um málið var
horin upp svohljóðandi tillaga og samþykl
með 6 alkv. gegn 2:
Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag
íslands að það stofni mótorvélstjóra-
skóla á Austurlandi nú á næsta ári,
er það starfræki að öllu leyti, og að
skóli þessi veiti munnlega og verk-
lega kenslu eigi skemri tíma en þrjá
mánuði á ári.
IV. Fiskimat.
Eftir miklar umræður voru bornar fram
lil samþyktar svohljóðandi tillögur:
1. Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag
íslands að beitasl fyrir, að lögum frá
9. júlí 1909 um fiskimat verði breytt
þannig, að Labrador-fiskur er fluttur
verður frá íslandi til Spánar og Ítalíu
verði matinn og flokkaður á sama
hált og alverkaður fiskur hefir verið
matinn eftir tilvitnuðum lögum.
2, Auk þess óskar Fjórðungsþingið að
Fiskifélag íslands undirbúi að setl
verði lög er fyrirskipi mal og fiokkun
á öllum saltfiski er fiuttur er úl frá
íslandi, í livaða ástandi sem hann er,
þegar hann er fiuttur út.
. Tillögurnar samþyktar með ölluin
greiddum atkvæðum.
V. Jarðeldamál.
Svohljóðandi tillaga var samþykt með
öllum atkvæðum:
Fjórðungsþingið lælur þá ósk í Ijósi,
að bætt verði að miklu leiti tjón það,
sem menn urðu fyrir af síðasta Kötlu-
gosi, með fjárframlagi úr ríkissjóði og
lýsir yfir því, að sjávarútvegurinn á