Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 24

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 24
74 ÆGIR slað og varð þá að bana tveim bændum frá Vík, og voru þeir einnig á heimleið frá beitarhúsum. Hitt flóðið féll á Ámá, fremsta bæ í Héðinsíirði, kom á fjárhús og drap þar son bóndans, 24 ára gamlan pilt, sem var að gegningum. Af 37 ám, sem í lnisinu voru, fundust 8 lifandi. — Annar maður var nýgenginn frá þessu fjárhúsi lil ann- ars fjárhúss, og barg það lífi hans. (Mgbl.). Námsskeið á Siglutirði 1919. Með símskeyti d.s. 18. febrúar æskir sljórn Fiskifélagsins að ég seti mig i sam- band við Fiskifélagsdeildina á Siglufirði um námsskeið þar í mótorvélfræði. Átti ég svo tal við formann deildarinnar á Siglutirði pr. síma, sem tjáði mér að þátt- taka þar yrði góð; var síðan ákveðið að námsskeiðið skyldi haldið þar. Vegna þess hve samgönguvandræðin voru mikil, gekk hálf illa að komast til Siglufjarðar, en fyrir milligöngu Fiskifélagsins í Reykjavík og lipurð Eimskipafél. forstjóra og skipstjóra á Sterling tókst þó loks að komast áleiðis frá Seyðisfirði 2. marz. Kom svo til Siglufjarðar 10. marz, og byrjaði námsskeiðið þar 12. s. m. Rátttakan var mest 33, sem flestir voru af Siglufirði, en þó voru 4 úr Ólafsfirði. Námsskeiðið stóð yfir frá 12. marz lil 15. apríl. Að því loknu var haldið próf yíir þeim af nemendunum, sem æsktu þess, og voru þeir 12 sem allir slóðust prófið. Neðanskráðir tóku próf, og hlulu í að- aleinkunín: Stig. 1. Sveinn Gíslason Siglufirði............ 15 2. Gunnlaugur Friðíinnsson Ólafsfirði 18 3. Sigurður Kr: Finnbogason Siglufirði 16 4. ' Einar Indriðason Siglufirði ....; 9 5. Hólm Jósúa Þorsteinsson Ólafsfirði 15 6. Jóhann J. Ásgrímsson Ólafsfirði ... 15 7. Baldvin R. Hallsson Siglufirði ..... 9 8. Rorsteinn Sigurðsson Ólafsfirði... 15 9. Þorlákur Guðmundsson Siglufirði... 13 10. Benedikt Jónsson Siglufirði ........ 14 11. Víglundur Jónsson Siglufirði....... 13 12. Sigurður K. L. Guðmundss. Siglufirði 15 Á þessu námsskeiði voru engir aðrir fyrirlestrar haldnir, en áformað var að halda læknisfræðislega fyrirlestra og íl., en varð ekki af vegna ýmissra anna, sem stöf- uðu af hinu sorglega snjóílóði, sem féll um þær mundir, sem átti að halda þá. Að námsskeiðinu loknu fór ég til Akur- eyrar lil að ná í Slerling, sem samkvæmt áætlun ekki átti að koma til Siglufjarðar. Fór frá Akureyri með Slerling 2, maí, og kom til Reykjavíkur 11. s. m. Nú nálgast óðar sá lími sem fulltrúar sjávarútvegsins koma saman til að ræða hans mál, og vænti ég þess að fyrirkomu- lag námsskeiðanna og atvinnu löggjafir fyrir mótorskip, verði þar tekin til ræki- fegrar athugunar, því éins og það nú er verður það ekki nema til stórtjóns fyrir alla málsaðila. Fyrirkomulag námsskeiðanna verður að bæla, lengja námslímann, og auka náms- greinum, en sérstaklega verður að vanda til þess að verklega kenslan geti orðið sem fullkomnust, því lienni hefir verið sérstak- lega ábótavant, sem eðlilegt er þar sem kensluáhöldin liafa verið nær engin og mjög léleg, og húsnæðið fyrir hana algjör- lega ófullnægjandi, eins og t. d. var hér í Rvík 1918, þá fór verklega kenslan fram í skúr, þar sem bæði snjóaði og ringdi inn á nemendur, kennara og prófdómendur. Allir sjá hve mikil vandræði eru að slíku, enda til að drepa áliuga allra sem liér

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.