Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 23

Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 23
Æ'GIR 73 með þessu öðru Fjórðungsþingi Sunnlend- inga slilið. Reykjavík 18. júní 1919. Ágúst Jónsson, Sveinbjörn Egilson, form. ritari. SDjóflóðii miklu í Siglufiröi. f*að mun tæplega nokkur maður geta gert sér í hugarlund, hvílíkur, ægikraftur var í snjóflóðinu, sem féll í Siglufirði að- faranótt hins 12. apríl. Upþi á háfjallsbrún (Staðarhólsfjalli) mun liafa hlaðist ógur- leg hengja, sem svo hefir fallið fram af þunga sjálfs sin. Fjallið er snarhralt og gríðar hátl. Jókst hraði flóðsins æ meir eftir því sem neðar dró og jafnframt varð skriðan margfalt stærri. Segja kunnugir, að enginn efi sé á því, að hún hafi þurk- að sjóinn langt út í fjörð. Norðanstormur var á og mikið brim, en þrátt fyrir það fór llóðaldan gegn veðri og sjó með slíku heljaralli, að hún mölbraut bryggjur hin- um megin fjarðarins langt fyrir norðan það, þar sem snjófióðið kastaðist í sjóinn. Og svo var fallhraði snjóskriðuiinar af- skaplegur, að loftþrýstingurinn einn sópaði u burt rúmum 30 nólabátum og uppskip- unarbátum, sem hvolfdu nokkuð fyrir sunnan snjóflóðssvæðið, og fóru þeir allir 1 spon. Með svo snöggri svipan greip snjó- fióðið húsin, íleygði þeim út á sjó og möl- fiiaui þau, að menn ælla að íbúarnir liafi eigi einu sinni vaknað við. Áð minsta kosti ljáru líkin þess vott, að fólkið hefði dáið 1 svefni. öll líkin eru nú fundin, nema tvö. Gufukatlana og vélarnar úr síldar- hræðsluverksmiðju Evangers bar fióðið *angt út á fjörð. Fólkinu á Neðri-Skútu vildi það til lífs, að baðstofan féll niður, en sópaðist ekki burtu, eins og mestur hluti bæjarins. Brotnaði þekjan þannig, að súðin hvíldi á rúmsluðlum. Fólkið lá í rúmunum og gal sig hvergi hreyft. Hefir það verið dapur- legt líf fyrir það að vera þarna milli heims og helju í 10 klukkustundir. Hjónin gátu talast við, en annars vissi enginn livað öðrum leið. I5ó var fólkið furðu lílið þjak- að, er því var bjargað, nema sonur lijónr anna, sem var meðvitundarlaus, enda var liann svo að segja á kafi í snjó. Miklar líkur eru til þess, að snjófióðið, sem eyddi bænum Engidal og drap alt heimilisfólkið þar, hafi fallið sömu nótt- ina og snjófióðið í Sigluíirði. En menn vissu ekki um það fyr en fjórum sólar- hringum síðar. Féll snjóflóðið þar um þveran dalinn og síðan ofan eftir honum og yfir bæinn, en náði ekki peningsliús- um, sem stóðu nær sjó. Fórst því eigi annað af skepnum þar en 2 kýr, 1 hestur, (i kindur, 2 hundar og 1 költur. Þriðji hundurinn komst lifs af og hafði grafið sig upp úr fönninni, er leitarmenn komu á vettvang, og var hann þó mikið meidd- ur. Fullorðið fé og hross hafði legið við opið og Ieið því vel, en i einum kofa voru lömb og eitt hross byrgt inni og voru lömbin svo liungruð, að þau höfðu elið ull hvert af öðru og taglhárið af hestinum. Héraðslæknirinn i Siglufirði álítur að fólkið, sem fórst, hafi alt fengið góðan dauðdaga. Sumt af Engidalsfólkinu kunni þó að hafa lifað eitthvað eftir að ilóðið féll, en mist meðvitund nær undir eins. í Héðinsfirði féllu tvö snjóflóð. Annað þeirra varð að bana Páli Þorsteinssyni bónda frá Vik. Var hann á heimleið frá beilarliúsum, og hafði eigi gefið um að bíða eftir tveim bænduin öðrum, sem lika voru á beitarhúsum. En þeir komusl af. Árið 1841 féll snjóflóð á þéssum sama I

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.