Ægir - 01.06.1919, Page 20
70
ÆGIR
þrem tillögum, tveim frá meiri hluta
nefndarinnar, þeim Ingvari Pálmasyni og
Bjarna Sigurðssyni, einni frá minni hlut-
anum, Herm. Þorsteinssyni..
Eftir miklar umræður var samþykt tii-
laga minni hlutans og önnur tillaga meiri
hlutans.
Nefndarálit.
Við undirritaðir, sem Fjórðungsþingið
kaus í nefnd til þess að láta álit vort í
ljósi um samvinnufélagsskap meðal sjó-
mannastéttarin'nar, leyfum oss að leggja
fram svohljóðandi nefndarálit:
Nefndinni dylst ekki nauðsyn sam-
vinnufélagsskapar á meðal sjómannaslétt-
arinnar og er einhuga á þeirri skoðun, að
vinna beri að því að koma samvinnu-
félagsskapnum í fast og reglubundið íorm,
svo fljótt sem unt er. Viðfangsefnin eru
mörg sem vinna ætti að með félagsskap.
Má þar tilnefna samvinnu alla er Iýtur
að framleiðslunni,' samvinnu um kaup á
því, sem til framleiðslunnar þarf og sam-
vinnu um sölu afurðanna. Nú þegar er að
vísu byrjuð samvinna á sumum stöðum í
Austfirðingafjórðungi um einstakar greinar
á því sviði, sem samvinnufélagsskapurinn
ætti að ná yfir. En svo mjög er þessu
ábótavant, að full nauðsyn virðist á því
að glæða samvinnufélagsskapar-áhuga og
fræða menn við sjávarsíðuna um sam-
vinnufélagsskapinn. En þó ber að líla á
það, að hve miklu leyti Fiskifélag íslands
ætti að hafa afskifti af þessu máli.
Nefndin lítur svo á, að samvinnufélags-
skapurinn eigi eingöngu að vera frjáls
samtök manna á meðal og alveg óháður
sljórnmálum þessa lands. Ætti sá félags-
skapur að vera kominn undir dugnaði
einstaklingsins, eins og það er komið
undir dugnaði kaupsýslumanna og fram-
sýni, hve vel sú atvinna heppnast. Aftur
á móti virðist rétt vera að Fiskifélag ís-
lands styðji að því að fræða félaga sína
um samvinnufélagsskapinn, og gera tilraun
til þess að glæða áhuga þeirra á sam-
tökum í þá átt. Lengra virðist ekki heppi-
legt að farið sé að svo stöddu.
Eskifirði 7. maí 1919.
Bjarni Sigurðsson, Ingvar Pálmason,
sem voru í meiri hluta með tillögurnar.
Hermann Þorsteinsson (með fyrirvara),
sem var í minni hluta með tillögu.
Tillögur meiri hlutans:
1. Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag
íslands að láta mann fróðan um sam-
vinnumál ferðast um Auslfirðinga-
fjórðung til þess að fræða menn um
samvinnufélagsskap og glæða áhuga
á honum, og telur heppilegt, ef hægt
væri, að sameina þann starfa ráða-
nautsstarfinu.
Tillagan borin undir atkvséði og feld
með 6 atkv. gegn 2.
2. Fjórðungsþingið skorar á stjórnir
fiskifélagsdeilda í Austfirðingafjórðungi
að gangast fyrir því, að tekin verði
til umræðu í deildunum samvinnu-
mál og gerð tilraun til þess að glæða
áhuga á þeim.
Tillagan samþykt með öllum greiddum
atkv.
Þá var borin fram tillaga minni hlutans
svohljóðandi:
Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag
íslands að það feli erindrekum sínum
að vinna meir að samvinnumálum
meðal sjávarútvegsmanna en áður
hefir verið.
Tillagan samþykt með 5 atkv. gegn 2.
XI. Fjórðungsbátur.
Svohljóðandi tillaga var samþykt með
öllum atkvæðum:
Fjórðungsþingið leggur til að kosin
verði þriggja manna nefnd til að at-