Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1922, Blaðsíða 7

Ægir - 01.01.1922, Blaðsíða 7
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS. J5. árg. Reykjavik, Janúar — Febrúar 1922. Nr. 1-2 Fjórðungsþing Áustfirðinga. Arið 1922 íimtudaginn 12. janúar, var fimta Qórðungsþing fiskideilda í Aust- firðingafjórðungi, sett og haldið á Norð- firði. Þessir fulltrúar voru mættir: Fyrir Seyðisfj.deild Vllhjálmur Árna- son og Herm. Þorsteinsson. Mjóafjarðardeild Sigurður Eiríksson. Norðfjaaðardeild Lúðvík S. Sigurðsson og Ingvar Pálmason. Eskifjarðardeild Bjarni Sigurðsson og Friðrik Steinsson. Reyðarfjarðardeild Bjarni Nikulásson. Fáskrúðsfjarðardeild Sveinn Benedikts- son og Arni Sveinsson. Forseti Ingvar Pálmason setti þingið, bauð fulltrúana velkomna, og var þar óieð settur 1. Pingtundur. Forseti lagði fram svohljóðandi dag- skrá fyrir þingið. 1. Tollmál. 2. Samvinnumál. •í. Spánartollur. 4. Fiskiveiðasýning. 5. Fiskimat. 6. Vitamál. ~. Steinolíumál. Strandvarnir. Þá var tekið fyrir fyrsta mál á fiagskrá. Tollmál. Framsögumaður Vilhjálmur Árnason skýrði frá hvað gerst hafði í málinu í Seyðisfjarðardeild, og lagði til að kosin yrði 5 manna nefnd i málið. Eftir nokkrar umræður voru þessir menn kostnir i nefndina. Bjarni Sigurðsson með 9 atkv. Sveinn Benediktsson með 8 atkv. Lúðvik Sigurðsson með 8 atkv. Hermann Þorsteinsson með 6 atlcv. Ingvar Pálmason með 6 atkv, Samkvæmt ósk framsögumanns Herm. Þorsteinssonar var samvinnumálinu frest- að til næsta fundar, og þvi tekið fyrir næsta mál á dagskrá, Spánartollur. Spánarlollur. Framsögumaður Hermann Þorsteins- son skýrði frá afstöðu sinni í málinu, og ettir nokkrar umræður, var fundarhlé til kl. 2. e. h, Fundur settur kl. 2, allir fulltrúar mættir, haldið áfram umræðum um Spánartollinn, og málinu þvi næst vísað til tollmálanefndar. Því næst var tekið fyrir næsta mál á dagskránni. Samvinnumálið. Eftir nokkrar umræður bar framsögu- maður Hermann Þorsteinsson fram til- lögu um að kosin yrði 3. inanna nefnd í málið. Bjarni Nikulásson bar fram svohljóðandi breytingartillögu, við tillögu framsögumanns, að kosin yrði 5 manna nefnd i stað 3.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.