Ægir - 01.01.1922, Side 9
ÆGIR
þeim vörutegundum, sem nauðsyn-
legar eru til framleiðslunnar.
Tillagan borin upp og samþykt í
einu hljóði.
Spánartollur.
Nefndin í þvi máli hafði klofnað í
þrent og kom hver hluti með sína tillögu.
Fyrsti hluti nefndarinnar Bjarni Sig-
urðsson og Sveinn Benediktsson komu
fram með svohljóðandi tillögu:
Fjórðungsþingið lelur mikla hættu vofa
yfir sjávarútvegnum, ef hækkaður verð-
ur að mun aðflutningslollur á fiski á
Spáni, og skorar því á þing og stjórn að
slaka til á bannlögunum gagnvart inn-
flutningi spánskra vína, ef ekki verður
unl að ná hagkvæmum tollsamningum á
öðrum grundvelli.
Annar hluti nefndarinnar, Ingvar
Pálmason og Lúðvík Sigurðsson komu
fram með svohljóðandi tillögu.
Fjórðungsþingið skorar á alþingi og
rikisstjórn að láta einskis ófreistað til að
uá hagkvæmum samningum við Spán-
verja, án þess að raskað verði lögum
um aðflutningsbann á áfengi.
Þriðji hluti nefndarinnar Hermann
Þorsteinsson, kom fram með svohljóð-
andi rökstudda dagskrá.
í trausti þess að alþingi og stjórn kom-
ist að sem bestum og hagkvæmustum
iollsamningum um fisk vorn við Spán-
verja, og í trausti þess að Fiskiþing og
Fiskifélagsstjórn beiti áhrifum sinnm i
sömu átt, tekur fundurinn fyrir næsta
uiál á dagskrá.
Eftir miklar umræður um málið, var
fiagskráin borin upp og feld með 8 at-
kvaeðum gegn 2.
Þá var borin upp tillaga þeirra Ing-
vars Pálmasonar og Lúðvíks Sigurðsson-
ar, og var hún samþykt með 6 atkvæð-
Um gegn 4.
3
Þar með áleit fundurinn, að tillaga
þeirra Bjarna Sigurðssonar og Sveins
Benediktssonar væi’i feld.
Fiskiveiðasýning.
Nefndin í því máli lagði fram svohljóð-
andi tillögu:
Fjórðungsþingið lítur svo á að stór
fiskiveiðasýning í Reykjavík sé ekki að
svo stöddu æskileg vegna kostnaðar og
samgönguerfiðleika.
Fjórðungsþingið telur því að deildun-
um beri að undirbúa þetta mál og skora
á erindreka að beita sér fyrir þvi, að
að allar deildir fjórðungsins hafi þetta
mál með höndum.
Sérstaklega telur það að fiskisýning
muni hafa talsverða þýðingu hvað vöru-
vöndun snertir.
Tillaga þessi var umræðulaust borin
upp til atkvæða og samþykt í einu hljóði.
Fiskimat.
Nefndin í þvi máli lagði frarn svohljóð-
andi tillögu:
Þar sem augljóst er að fiskverkun er
enn ábótavant í ýmsum atriðum, vill
fjórðungsþingið skora á yfirfiskimatsmenn
að ferðast um og leiðbeina mönnum í
því efni, þar eð ný matslög eru gengin
í gildi, litur fjórðungsþingið svo á að
nauðsýnlegt sé að leiðbeina matsmönn-
um svo, að þeim verði fyllilega ljóst
hvernig þeir eiga að meta, og meiri sam-
kvæmi komist á í matið en verið heíir.
Fjórðungsþingið skorar því á stjórn
Fiskifélags íslands að hlutast til um að
yfirfiskimatsmaður í Reykjavik ferðist
um og leiðbeini malsmönnum út um
land. Fjórðungsþingið er mótfallið því að
nokkuð verði linað á gildandi mats-
lögum.
Eftir litlar umræður var tillagan sam-
þykt í einu hljóði.