Ægir - 01.01.1922, Blaðsíða 12
6
ÆGIR
Fleira kom ekki til umræðu á þinginu.
Með þvi var þinginu slitið.
Ingvr Pálmason, Herm. Porsteinsson;
forseti. ritari.
Vilhjálmur Árnason,
varaforseti.
Friðrik Steinsson, Bjarni Sigurðsson,
Sveinn Benediktsson, Bjarni Nikulásson,
Sigurður Eiríksson, Árni Sveinsson,
Lúðvik S. Sigurðsson.
Rétta útskrift staðfestir.
Vilhjálmur Árnason,
varaforseti.
Verðfall skipa.
Hinn 24. ágúst siðastliðinn fór sala fram
i London, á skipum, er átt hafði félag
það, er Sutherland Steamship Compang
nefnist og hafði aðsetur i Newcastle.
Hafði félagið keypt skipin i febrúar 1920
frá Cardifl. Mun þetta hafa verið nauð-
ungaruppboð. Skipin sem seld voru, átta
að tölu voru seld fyrir verð það, er hér
segir:
1. Eimskipið »Highmead<.( smiðað 1919,
8280 rúmlestir, seldist fyrir £ 60.000,
verð þess i ágúst 1920 var £ 280.000.
2. E. s. »Southmead«. smiðað 1918, 8350
rúmlestir selt á £ 60.500, verð i ág.
1920 £ 280.000.
3. E. s. y>Forjar« var smiðað 1912, 6445
rúml., selt fyrir £ 35.250, verð i ág.
1920 £ 150.00.
4. E. s. »Nethermead«, smiðað 1911,
6445 rúml., salt á £ 35.000, verð i
ág. 1920, £ 150.000.
5. E. s. »Roxbourg« smíðað 1908, 7500
rúrnl., fór á £ 20.000, verð i ágúst
1920 £ 170,000.
6. E. s. »Ulversmead« smiðað 1907,
6600 rúml., selt fyrir £ 6.100, verð
i ág. 1920 £ 130.000.
7. E. s. »Gwgnmead« smíðað 1906, 6600
rúml., selt fyrir £ 23.000, verð i ág,
1920 £ 140.000.
8. E. s. »Yorkmead« smiðað 1906, 6050
rúml., selt fyrir £ 26.300, verð í ág.
1920 £ 150.000.
Á hinu sama uppboði var e. s. »San-
day« selt fyrir £ 13.000, smiðað 1900,
6123 rúml. Það kostaði £ 55.00 í októ-
ber 1917.
Þetta verðfall skipa er hvervetna. Hér
á landi mun það likt og á hinum áður-
töldu skipum, þótt upphæðir séu aðrar
en þær, sem hér verður talað um. Árin
1918 og ’19 kostaði hver rúmlesl i ný-
smíðuðum mótorbát um 4000 krónur,
eða með öðrum orðum, að 12—14 rúm-
lesta mótorbátur koslaði með vél og öllu
um 50.000 kr.
Vegna örðugleika þeirra, sem hver-
vetna eru manna á meðal, hafa bátar og
skip hriðfallið i verði, sem staíar af þvl>
að þuríi einhver að losna við bát eða
skip, þá fær hann að eins það fyru
fleytuna, sem kaupendur sjá sér fært að
greiða, en þeir eru nú farnir að skjrgn-
ast eftir, hvort útgerð beri sig og taka
skips verð með i þann reiltning.
Farmgjöld verða að vera há til þess
að dýr vöruskip beri sig, en þau hafa
lækkað og útgerð hinna dýru skipa bei
sig því ekki. Áf því stafa nauðungarupP'
boðin og ógöngur þær, sem skipseigend-
ur hafa komist i.