Ægir - 01.01.1922, Síða 21
far um að rannsaka ástæðuna og reyna
að kippa meðferð á fiski í lag, athuga
hvernig með hann er farið frá því hann
er innbyrtur, þangað til hann er orðinn
að útflutningsvöru. Mikið af nr. 2 er ekki
aðeins peningar úr vasa fiskeigenda, held-
ur einnig hefir það rýrandi áhrif á verð-
ið á nr. 1 á heimsmarkaðinum.
Allar þær þjóðir, sem flytja út fisk eru
nú af mesta kappi að lögleiða fiskimat
og koma allri meðferð á fiskinum í sem
bezt horf. Á sama tima lesum við það,
að verkun á fiski hnigni hér og hefir
þó þur fiskur héðan lengst af skarað
fram úr fiski annara þjóða. Orsölc er til
alls og hér má rekja orsökina að með-
ferð versnaði, til skylduafhendingar á
blautum fiski til Englendinga í stríðinu.
Það er auðvelt að koma ólaginu á, en
verra að kippa i lag á eftir. Þar sem
nú alt er undir því komið, að fiskverð
haldist í hæsta verði, ættu allir sem við
fiskverkun eru riðnir að vanda verk sín,
ekki sízt nú, þar sem vænta má að ný
reglugerð um fiskimat komi fyrir næsta
sumar, sem að öllum likindum verður
strangari, en sú sem nú er farið eflir, og
hugfast verða menn að hafa það, að verði
meira en J/4 aAa þeirra nr. 2, þá má
búast við erfiðleikum við að selja hann.
Reykjavík 20. janúar 1922.
Sueinbjörn Egiison.
Vitar og sjömerki.
í Sandgerði hefir verið kveikt á nýja
vitanum. Er hann í ferstrendum gráum
turni ofan á framgafii fiskihúss Haraldar
Böðvarssonar. Turninn er 9 m hár frá
jörðu, ljóskerið 3 m hátt, rauðmálað.
Ljósið er 11 m yfir sjó; einkenni: hvít-
ur, rauður og grænn blossi á 3 sek. milli-
bili. Ljósið er grænt fyrir sunnan stefnu
111°, hvítt frá 111° til llV/i0 (innsigl-
ingin á Hamarssund), rautt frá IHV20
til 171°, grænt fyrir austan 171° (yfir
Skagarif). Þegar Hamarsund er ófært,
er auk vitaljóssins sýnt fast rautt ljós
fj’rir neðan vitapall. Ljósmagn hvíta
ljóssins 13 sm., rauða lOVs sm., græna
9Vs sm. Breidd 64o02'24". Lengd 22°43'08".
Logar 1. janúar til 15. mai.
Á Vatnsnesvita austan við Keflavik
hefir verið kveikt Ijós eins og getið er
um í Lögb.blaðinu 29. sept. 1921. Vita-
húsið er grár steinsteyputurn, 5 m hár,
með 3J/2 m háu, gráu Ijóskeri, en í vor
mun vitinn verða málaður hvítar með
lóðréttum rauðum röndum. Ljósið er
hvítt og rautt, fast með tvimyrkvum. Ljós-
ið er hvitt yfir Keflavíkurhöfn fyrir sunnan
stefnu 327°, rautt frá 327° til 356° (yfir
Stakk), hvitt frá 356° gegnum 0° til 162°,
rautt fyrir vestan 162° (yfir Klapparnef).
Breidd 64°00'02". Lengd 22°34'56". Logar
1. ágúst til 15. maí.
Aukaljósið í Oarðskagavitannm (sbr.
Lögbr.bl. 1921 nr. 22) verður ekki sett
upp fyr en i sumar.
Vörðurnar í Óiatsvík við Breiðafjörð
eru komnar upp, en eru gráar þangað
til þær i sumar verða málaðar hvítar og
rauðar (sbr. Lögb.bl. 1921 nr. 22).
Merkibanjnn á Vaihúsgrnnni við Hafn-
arfjörð hefir rekið inn milli skerjanna.
Hún mun eins fljótt og ástæður leyfa
verða tekin hurt og ekki lögð út aftur.
Reykjavík, 9. og 27. jan 1922.
Vitamálastjórinn
Th Krabbe.