Ægir - 01.09.1929, Side 5
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS.
22. árg.
Reykjavík, — September 1929.
Nr. 9.
Fiskirannsóknir á ,Þór,
Tiundu rannsóknarferð sína (aðra sum-
arferðina) út í Faxaflóa fór »Þór« 18.
júlí siðastl. Foringi skipsins var ekki með,
en 1. stýrimaður, Magnús Björnsson,
hafði yfirstjórn skipsins á hendi. 1 stað
Jóhannesar Bjarnasonar, sem var fjar-
verandi, var fenginn Kristján Kristjáns-
son, sem áður hefir verið á »Dönu«.
Var fyrst haldið vestur á Norður-Svið
og kastað vörpu þar kl. 10.45. Var blind-
þoka og ómögulegt að sjá til miða;
festist því varpan og rifnaði allmikið, en
gálginn hljóp upp úr stellingu, þegar inn
var dregið og bognaði leggur hans líiið
eitt um leið. Var svo legið alla nóttina
og fram á dag í þoku, svo aftur reynt
að toga, en aftur voru festur i 3 drætti,
og þokunni vildi ekki létta. Var þá hald-
ið suður i Garðsjó; þar var bjart og þar
var góður botn og gnægð flatfisks. Þeg-
ar hinir vanalegu 5 drættir voru búnir
þar, var farið inn fyrir Hólmsberg á
vanalegar slóðir, en að eins dregnir 4
drættir, vegna þess, að svo var orðið
hvasst á norðan, að ekki mátti hvassara
vera, til þess að geta athafnað sig. Var
þvi farið norður á flóann, þar sem var
kyrrari sjór og dregið um Sandaslóð og
Bollasvið, en við festu sem við fengum
þar, hrökk gálginn í sundur og urðum
við því að halda heim og fá hann lag-
aðan og skipið var um leið hreinsað.
Svo var farið út aftur 24. og var þá
Jón Árnason frá Heimaskaga með. Þoka
var enn á Sviðinu og iit að sjá til miða,
en alt gekk nú vel, en aflinn lítill. Voru
nú dregnír 7 drættir í viðnót við 2 er
áður höfðu verið gerðir þar. 2 voru auk
þess dæmdir ómerkir (þegar festurnar
urðu mestar). Loks var um kl.tíma drátt-
ur í Kollafirði og yfirborðshitinn mæld-
ur á Norður-Sviði og út af Keflavík.
Á Norður-Sviði var 1 togari (enskur)
i nánd við okkur og 'á Bollasviði og
Sandalóð 3—4, en ekki virtust þeir afla
meira að sínu leyti, en við. Annars má
sjá á yfirlitinu yfir aflann, að hann var
yfirleitt lítill utan landhelgi, miklu minni
en suður í landhelginni, þar sem hann
að tölunni til mátti teljast mikill.
Yfirlitið er svona, fiska tala (og tala
á togtíma í svigum.
Utan línu. Innan linu.
Porskur . . 31 (1.7) i (0,06)
Ysa (0,6) 536 (29,2)
Lýsa )) 4 (0,2)
Ufsi )) 8 (0,4)
Luöa .. 29 (1.6) 115 (6,3)
Skarkoli .. 53 (2,9) 1253 (64,0)
Sandkoli .. 317 (17,1) 5100 (283.3)
Pykkvalúra .. 15 (0,8) 111 (6.2)
Skrápílúra .. 11 (0,6) 868 (48,2)
Steinbitur .. 9 (0,5) 118 (6,6)
Tindaskata .. 32 (1 8) 360 (20,0)
Hrognkelsi 1 (0,06) 1 (0,06)
Skötuselur )) 1 (0,06)
Marhnútur )) 14 (0,8)
Sexstrendingur )) 1 (0,06)
Samtals .. 508 (27,1) 8491 (471,2)