Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 6

Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 6
182 ÆGÍft Yfirlitið sýnir ad utan landhelgislínu fengust alls að eins 508 fiskar (57,1 á toglínu), en innan línu 8491 (471,2 á togtíma, eða nál. 17 sinnum fleiri. Eins og vant er, var sandkolinn lang-flestur, bæði utan landhelgi og innan, en nú var líka allmargt af skarkola á allri stærð frá 18 til 48 cm í landhelgi, einkum í Garð- og Leirusjó (nær 1000 fiskar) og aí smálúðu, tindaskötu og skrápkola var og töluvert þar, sömuleiðis af smáýsu, mest veturgamalli (18—25 cm), aftur á móti var fremur fátt þar um steinbít og varla þyrsklingsvart. Meira var um þyrsk- ling á Norður-Sviðinu, og hefði ef til viil fengist meira af honum þar, ef farið hefði verið á sérstakar þyrsldingsslóðir, sem kunnugir menn þekkja i hraunkrikunum. Á Sviðinu var töluvert vart við 7—9 cm (veturgamalt) sandsíli, sem ef til vili hefir líka haldið þyrsklingi og stútúngi uppi í sjó. Einnig fekst nokkuð af5—6 cm. þorsk- seiðum á 1. ári. Annars var fátt um allan íisk utan landhelgislínu, færra miklu en suður í landhelginni, eins og áður er tekið fram; og sama er að segja um Kollafjarðar- landhelgina, þar fengust 4 ýsur, 3 lúður, 28 skarkolar, 53 sandkolar og 13 skráp- flúrur á einum togtíma, en alt var það mjög smátt (uppfæðingur). Sé aflinn í þetta skil'ti borinn saman við aflann á »Þór« í fyrra sumar (sjá »Ægi« XXI. bls. 210), þá sést það, að hann er mun meiri af flestum tegundun- um (á togtíma), af skarkola tvöfalt, af ýsu 2l/s-falt meiri í landhelgi, (nema á Kollafirði), en hann var þá, en ulan landhelgi öllu minní. Sviflífið var yflrleitt lítið og botndýra- lífið var alt af vanalegu tægi, mikil mergð af krossfiski á Norður-Sviði; það er eins og hann sé ódrepandi, hve mikið sem veiðist af honum, líkt og sandkolinn og skrápflúran. Vegna bilunar á djúphitamælum var að eins mældur j'firborðshitinn; hann var 12—12,3° eða nær 1° hærri en i fyrra (í byrjun ágústm.). B. Sœm. Um aldusrákvarðanir á þorski og þýðingu þeirra. Öllum fiskimönnum er það kunnugt, hve miklum sveiflum árangurinn af öll- um veiðiskap er undirorpinn. Það má nærri teljast einkenni á öllum veiðiskap, sem stundaður er í stórum slíl, og mynd- ar atvinnugrein heilla stétta manna, hve misjafn hann er. Þannig er því til dæmis varið með síldveiði og þorskveiði hér við land. Stundum eru allir firðir og vogar fullir af fiski, hvert árið eftir ann- að í röð, stundum er »þurl« hvar sem leitað er, ef til vill árum saman. Þessi staðreynd er eitt af þýðingarmestu við- fangsefnum hafrannsóknanna, og hafa verið farnar margar leiðir til þess að finna skýringu þessa mikla og tilfinnan- lega breytileik aflans. Margar eru líka þær skoðanir, sem fiskimenn hafa skap- að sér um orsök breytileikans, sem eng- um lögmálum virðist vera háður, heldur fylgja dutlungum einum. Algeng mun sú skýring hafa verið, að mismunur á ár- ferði, hvað aflabrögð snerti, stafaði af göngum fisksins, frá og að landi. Enda máttí fyr á tímum, einkum hér á landi, þegar sjómenska var í bernsku, kenna opnu fleytunum um ef illa fiskaðist c: fiskurinn gat lialdið sér á hafinu, þótt hann gengi ekki inn í tirðina. Rann- sóknir síðari tíma hafa þó leitt í ljós, að ekki er altaf hægt að kenna fiskigöngun- um einum um útkomuna. Aðrar orsakir,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.