Ægir - 01.09.1929, Qupperneq 8
184
ÆGIR
hann er nokkurnveginn eins að aldri.
Á grunnmiðunum í Vestfjörðum íslands,
t. d. Arnarfirði, veiðist oft mikið af
»stútung« 50—70 cm. að stærð, 4—6 ára
að aldri. (B. Sæm.: Fiskarnir, bls. 231).
Bregðíst nú fiskur á þessum miðum,
getur orsökin aðallega verið tvenn: 1)
fiskurinn leitar ekki upp á grunnmiðin,
annaðhvort vegna þess að þar vantar
átu, eða t. d. af því að sjórinn er of
kaldur o. s. frv. eða 2) viðkoma þorsks-
ins við ísland hefir verið lítil fyrir 4 — 6
árum, svo að árganga þá, sem vanir eru
að fiskast á þessum stöðvum á aflaár-
um vantar í stofninn. Ennfremur getur
skeð að árganga þessa vanti af öðrum
orsökum, t. d. af því að þeir hafa dáið,
hafa verið étnir af fiski eða veiddir áður
en þeir urðu 4—6 ára og ganga á miðin.
Á hinn bóginn sýna aldursákvarðanir oft
glögt, að aflaár stafa ekki eingöngu af
þvi, að fiskigöngur eru heppilegar, heldur
og einnig af hinu, að mikil hefir verið
viðkoma og góð kjör til þroska undan-
farin ár. Ef viðkoman er sérstaklega
mikil eitthvert ákveðið ár, og þorskur
sá, sem þá kemur í heiminn nær að
þroskast þangað til hann er nýtur til
veiði, sýna aldursákvarðanir oft, að ár-
gangurinn gnæfir yfir i aflanum, oft í
mörg ár. Til þess að sýna hve þetta
getur komið greinilega í ljós, vil ég víkja
nokkrum orðum að aldursákvörðunum,
sem eg hefi gert á smáfiski frá Aust-
fjörðum. Gögnum til þessara rannsókna
var safnað á rannsóknarskipinu »Dana«
árin 1925, 1926 og 1927, og hefir nýlega
borist ritgerð um árangur rannsóknanna
(Árni Friðriksson: »Age-Composition of
the Stock of Cod in East Iceland Fjords
during the Years 1925—1927«, Rapp. et
Proc. Verb. 1929).
13. ágúst 1925 voru fiskaðir 2203
þyrsklingar á Seyðisfirði. Lengd þeirra
Tafla 2. Aldur og lengd á þorski, teknum á
Seyðisfirði 12.—13. júní 1926,
(veiddum með ádráttarneti).
Lengd í cm Ársgamall (I - Gr.) Tvævetur (II - Gr.) Þrevetur (III -Gr.) Fjögra vetra (IV - Gr.) Samtals
50 - “ 1 í
45 -
40 - 1 í - í 2
2
2 2
2 2
35 -p
3 3
1 1
30 - - 2 - -r 2
2 2
5 1 6
7 1 8
20 20
25 - 30 30
22 22
38 38
49 49
35 35
20 - - 26 - - 26
45 45
29 29
12 12
i 2 3
15 - - 5 5
4 4
8 8
17 17
7 7
10 - -5-r - 5
1 1
■ 1 1
5 - ”
Fjöldi 49 320 17 2 388
Meðall.,cm 12.22 21.74 33.35 43.50
var 10—45 cm. og aldurinn var að þvi
skapi misjafn, þótt langmest bæri á