Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1929, Page 11

Ægir - 01.09.1929, Page 11
ÆGIR 187 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 ö/o ----------1----------1----------1---------1----------1----------1----------1----------1----------1---------1----- Austfirðir 1925—27. Norðurland 1925—-27. Faxaflói 1925—27. --------1--------1--------1-------1--------1--------1--------1--------1--------1-------1---- 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100% Yfirlitsteikning 2. Sýnir árgang frá 1924, í hundruðustu hlufum, af öllum aflanum við norður-, austur- og suðvesturströndina, á árunum 1925—27. úr þessu vandamáli, varð að safna gögnum til aldursákvarðana við aðra landshluta, og vinna úr þeim. Árangurinn af þessum frekari rann- sóknum, sem bygðar eru á gögnum frá austur- norður- og suðvesturströnd lands- ins, safnað á mismunandi stöðum, 8 stöðum frá austurlandi, 5 stöðum frá norðurlandi og 3 stöðum frá Faxaflóa, eða 16 stöðum alls, safnað á árunum 19J5—27, reyndist í stuttu máli þessi: 1. Við austurströndina fiskaðist alls 4033 fiskar, þar af voru 3084, eða 76,66 °/o (hundruðustu hlutar) frá 1924, eða 1925 ársgamlir, 1926 tvævetrir og 1927 þrevetrir. 2. Við Norðurland veiddust 1034 fiskar alls, þar aí 69 eða einungis 6,gt°/o frá 1924, og í 3. Faxaflóa veiddust 1299 fiskar, þar af 299 eða 23,o3°/o frá 1924. (Sjá töflu nr. 4 og yfirlitsteikningu nr. 2). Alt þetta sýnir, i fyrsta lagi að við- koma þorsksins við ísland hefir verið góð árið 1924, þvi árgangurinn frá 1924 er mjög yfirgnæfandi í miklum stofni við austur-lsland, og í öðru lagi, að seiðín, sem klakist hafa 1924, hafa, af einhverjum óþektum ástæðum, einkum safnast saman við austurströndina, þar sem mjög mikið ber á árganginum siðan. Þegar öll þessi mergð, frá 1924, hefir náð kynþroska, og leitar á gotstöðvarnar við suður- og vesturströnd landsins, er því mikils vertíðarafla að vænta. Aldursrannsóknir á þorski, hafa mikla

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.