Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1929, Qupperneq 14

Ægir - 01.09.1929, Qupperneq 14
190 ÆGIR Álftafjörður. f*aðan gengu nú einungis 5 vélbátar undir 12 lestum, og 2 smá- vélbátar um tíma, en í fyrra gengu það- an 2 vélb. um 30 lestir og 7 vélb. undir 12 lestum. Afli frá apríl-byrjun til júní-loka um 730 skpd. (1970). Það er rýr meðalafli, líkt og í Hnífsdal. í Álftafirði mun verkað svipað af flski og s. 1. ár, og er það af norskum fisk- veiðiskipum, sem Þorvarður Sigurðsson hefir keypt. Verður sá fiskur talinn sér á árs-skýrslunni ásamt öðrum aðkeypt- um fiski. Ögurnes og Ögurvík. Þaðan gengu nú einungis um 7 opnir bátar flest; af þeim voru 5 með smávélum, en í fyrra gengu þarna um 20 bátar. Aflinn yfirleilt rýr einkum síðari hluta vors og fengust um 340 skpd. til 1. júní (1100). Snœfjallaströnd. Þaðan gengu nú 5—6 smávélbátar og 1 árabátur og er það 1—2 bátum færra en í fyrra. Afli til 1 júlí tæp 200 skpd. (300). Vertiðin rýr. Grunnavík. Þaðan gengu nokkrir smá- bátar i júní, en gengu úr Hnifsdal fyrri- hluta vors og fengu um 60 skpd. Sléttuhreppur. (Aðalvík, Strandir og Hesteyri). Þaðan gengu alls í vor 8 vél- bátar og 1 smávélbátur og um 12 ára- bátar. í fyrra voru vélbátarnir þar 6 —7 og 6 árabátar. Afli frá 1. april til 1. júli um 990 skpd. (900). Aflabrögð voru yfir- leitt betri þarna en í veiðistöðvunum við Djúpið, og einkum var afbragðsafli á Ströndum á árabáta, fyrri hluta vors. Á Gjögri hófust róðrar í mai, en þar er fátt báta og því ekki teljandi afli kom- inn á land í lok júní. Eins og sl. ár hafa bátar úr Álftafirði stundað fiskveiðar frá Djúpuvík, og fóru þangað í lok júni. Sömuleiðis hafa 3 vél- bátar frá Hnifsdal stundað veiðar frá Hafnarhólmi í Steingrimsfirði. Á Steingrímsfirði hefir margt aðkomu- báta stundað fiskveiðar í sumar, og byrj- uðu þeir flestir í júní. Eftir skýrslum þaðan höfðu aflast i Steingrisfirði um 300 skpd. í júnilok. Eftir framanskráðum upplýsingum að dæma hefir vorvertíðin verið rýr í öllum veiðistöðvum við ísafjarðardjúp. Má segja að aðalástæðan hafi verið beituskortur. Frystisíld entist óvíða nema lítið framan af vori, eftir það var beilt skelfiski, og í lok mai fékst lítið eitt af síld í vörpu, er varð eigi nema fáum að notum, enda mjög líðið á vertíð. Bátar flestir hættu veiðum að mestu um miðjan júní i Bol- ungarvík og Hnifsdal. Mestur afli á hina smærri vélbáta mun vera í vor um 150 skpd. af þurfiski og hæztur hlutur um 600 kr. Það má að vísu teljast góður afli á vorvertið, eftir því sem tíðkast hér vestra, en allur þorri báta er lika langt fyrir neðan þetta. Hinn ágæti afli á vetrarvertíðinni, sem getið er um i skýrslu minni í maibl. Ægis bætir upp vorvertíðina. Hér á Isafirði hafa stærri bátarnir náð meðalafla yfirleitt. Þeir voru lengstum að veiðum í Jökuldjúpi og öfluðu þaf vel fyrri hluta vors. Á Vestfjörðunum hefir vor aflinn verið tiltölulega betri en við Djúpið, og sum- staðar enda ágætur, svo sem i Tálkna- firði, svo og á Arnarfirði og Patreksfirði. Færaveiðiskipin öfluðu og yfirleitt vel og sum ágætlega, á vorvertíðinni. Verður nánar getið um suroarafla þeirra í næslu skýrslu minni, og þá um ýmislegt fleira í sambandi við fiskveiðar og sjávarmál' efni, er eg læt bíða að þessn sinni. tsafirói 1. sept. 1929. Kristján Jónsson, frá Garðsstöðum.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.