Ægir - 01.09.1929, Qupperneq 18
194
ÆGIR
f*á kom sá fram á sjónnrsviðið, sem lét
menn rumska og nugga stírurnar úr
augunum.
Þessi maður var William Hillary,
mesta hetja og mannvinur.
Hann fann upp ýmsar endurbætur á
bátunum og kom þeim í framkvæmd,
en lét ekki þar við sitja, heldur varð
það hans líf og yndi að starfa sem ó-
brotinn háseti á þeim. Hann hafði
horft á mörg skipbrot áður og vann sem
jötunn til þess að bjarga skipreika mönn-
um. Oft var hann staddur í lífsháska,
dreginn úr brimi hálfdauður, hann rif-
brotnaði, en háseti á björgunarbát hélt
hann áfram að vera, hvatti menn og
lagði til eigin krafta og fé.
Er hann hælti, höfðu bátar þeir er
hann vann á, bjargað 305 mönnum írá
druknun.
Hann kom ensku þjóðinni í skilning
um, hvað hún ætti þeim mönnum að
þakka, sem héldu uppi siglingum á haf-
inu og sá skilningur hefir haldist og
aukist. Að lokum átti hann sæti í nefnd
ásamt þingmönnunum Thomas Wilson og
Georg Hibbert, sem stofnuðu Hið konung
lega breska björgunarfélag, sem stofnað
var 12. mars 1824.
1 árslok 1864 átti félagið 132 björgun-
arbáta og björguðu nokkrir þeirra 714
mönnum það ár. Einuig komu þeir 17
bjargarlausum skipum i höfn.
Vagnar fylgdu ílestum bátunum.
Verð hvers báts með öllu til-
heyrandi......................£ 300
Verð vagnsins...................- 100
Verð skýlis......................- 100
~~£ 5ÖÖ
Þóknun til þeirra, sem unnu að björg-
un 714 manna árið 1864, nam alls 1300
sterlingspundum, en það urðu um 15
ríkisdalír, o: 30 krónur á mann.
Ennfremur var heiðursmerkjum út-
hlutað fyrir framúrskaiandi dugnað; 15
menn fengu silfurmedalíu og 26 þaklcar-
ávörp, rituð á pergament og innbundin
í flauel.
Tekjur félagsins árið 1864 voru £ 21000
= 378000 krónur.
Gjafir voru margskonar; þannig gaf
munaðarlaust barn kr. 18,45 i frímerkj-
um, dóttir sjómanns 180 krónur, önnur
1800 krónur i minningu björgunar 31.
okt. 1861. Hið stærsta legat var þá 10000
sterlingspund, 180000 krónur og margir
gáfu írá 1800 krónum upp í 18000 krón-
ur. Á 40 árum hafa bátar félagsins bjarg-
að (1824—1864) 13570 mönnum. Á sama
tímabili hefir björgunarfélagið úthlutað
82 gullmedalíum, 736 silfurmedalíum, í
reíðu peningum 17830 sterlingspund =
320940 krónur og goldið fyrir báta, vagna
og skýli, 82550 sterlingspund = 1485900
krónur.
Síðan þessi skýrsla var gefin eru liðin
65 ár og 105 ár síðan enska björgunar-
félagið var stofnað.
Björgunarfélag íslands er nú stofnað
fyrir tæpum tveim árum og björgunar-
bátur íenginn; — væri óskandi, að sami
skilningur mætti komast inn hjá Islend-
ingum og sá, sem Bretar sýndu i þessu
velferðarmáli allra siglingaþjóða.
16. sept. 1929.
Sv. E.
Marsvín rekln á land á Ströndum.
Seint í ágúst voru um 200 marsvín
rekin á land við Ófeigsfjörð á Ströndum.
Var torfan geysistór og er giskað á, að
um 1000 marsvín hafi orðið landföst um
fjöruna, en flest þeirra losnuðu aftur
með aðfallinu.