Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 20
196
ÆGIR
Bulletin Statistique
fyrir árið 1927 er nýkomin, er þar mik-
inn fróðleik að finna um fiskframleiðslu
allra helstu fiskiveiðaþjóða í Evrópu og
Ameríku og verðmæti framleiðslunnar,
Framleiðslumagnið er miðað við ferskan
fiskinn einsog hann kemur upp úrsjónum.
Pau lönd er mesta framleiðslu höfðu,
voru:
Noregur 932436 smálestir.
England 700025 —» —
Canada 467167 —» —
Skotland 391482 —»—
lsland 250181 —»—
Þýskaland 241271 —»—
Með afla Englands eru taldar 35577 smá-
lestir, sem þar er lagt í land af útlend-
um skipum og er nokkuð af því upsa-
veiði islensku togaranna.
Öðruvísi lítur út með verðmæti fram-
leiðslunnar. Þar er ísland ekki 5. í röð-
inni, eins og með framleiðslumagnið.
Verðmætið er samræmt í öllum lönd-
um og miðað við shilling (sh.).
Þar verður röðin þessi:
England 281086 þúsund shillings.
Frakkland 143811 — —
Canada 109468 — —
Skotland 86683 — —
Noregur 76676 — —
Þýzkaland 61480 — —
HoIIand 54822 — —
Portúgal 45997 — —
Bandaríkin 38700 — —
Danmörk 37203 — —
ísland 30454 — —
Sviþjóð 29743 — —
Framleigslumagn Danmerkur er ekki
nema 83720 smálestir sem er ekki nema
þriðji partur af okkar framleiðslu, en þó
er verðmæti framleiðslu þeirra nærri
7 miljón shillings meira en okkar. Þetta
ætti að benda á, eins og svo oft hefir
verið fekið fram hér í blaðinu, að nauð-
synlegt er fyrir okkur að hugsa meira
um en hingað til, á hvern hátt vér gæt-
um aukið verðmæti framleiðslunnar.
Hingað til höfum við haft hugann ein-
göngu á því að auka framleiðsluna, en
miklu fremur vanrækt það aðalatriði að
auka verðmælið nema þær endurbætur,
sem vér höfum gert smátt og smátt að
vanda saltfiskinn sem mest, og má óhætt
segja að við þar stöndum fyllilega jafn-
fætis öðrum þjóðum á þvi sviði, en með
því að halda okkur eingöngu við salt-
fiskverkunina, getum við ekki aukið
verðmætið borið saman við framleiðslu-
magnið mikið úr því sem nú er. Það er
aðeins með því, að við gætum komið
meiru af fiskinum ferskum á útlenda
markaði, að við gætum búist við þvi að
fá verðið upp svo nokkru nemi.
Að meðaltali hefir verðið verið hæðst
í Póllandi eða 0,69 sh. pr. kg. en lægst
í Noregi 0,09 sh. pr. kg. Á Islandi hefir
meðalverðið verið 0,12 sh. pr. kg. og er
það lægst að Noregi einum undantekn-
um, en að verðið er svo lágt i Noregi,
stafar af því, að helmingur framleiðslu
þeirra (443014 smálestir) er síld sem er
suma tíma árs mjög verðlitil.
Af framleiðslu íslands á árinu voru
51371 smál. síld 164783 smál. þorskur
og 18990 smál. ufsi.
Annars er í skýrslu þessari ýmsar
fróðlegar upplýsingar um framleiðslu
fiskiveiða þjóðanna, þó ekki sé rúm til
þess að fara nákvæmar út í það hér.
K. B.
Hvalur í Keflavík.
Snemma í septembermánuði fann vél-
báturinn »Goðafoss« dauðan hval á floti
skamt undan landi. Hvalurinn var reyð-
ur, geysistór. Var hvalurinn skorinn í
Keflavík og seldur.