Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1929, Síða 24

Ægir - 01.09.1929, Síða 24
200 ÆGIft Landhelgisbrot. í »Fish Trades Gazette« 17. ág. þ. á. er grein, um samvinnu gæzluskipa og flug- véla við strendur Englands, til varnar landhelginni. Er þar skýrt frá, að 13. ágúst s. 1. hafi franskur skipstjóri, Charles Admont á togaranum »Maxime« frá Gravelines, verið kærður fyrir að vera á veiðum innan þriggja mílna landhelgis- linunnar. Sumarið 1927 voru fjöldamörg landhelgisbrot fyrir réttinum í Lowestoft, sem leiddu til, að hert var á eftirliti og þyngri sektir lagðar við, sé lögum ekki hlýtt. Eftir þær ráðstafanir bar minna á brotum, en er tíminn leið fór að sækja í gamla horfið. Fyrir rétti mætti skipstjóri Admont og með honum frakkneski ræðismaðurinn R. S. Chapman, sem einnig var túlkur við réttarhaldið, því skipstjóri kunni ekki ensku. Hann kannaðist ekki við brotið. Fyrir Board of Trade mætti Mr. Wilt- shire og gat þess, að ekki mætti saka bresk réttarhöld um hægfara afgreiðsiu. Hér væri mál komið fyrir rétt, 10 klukku- stundum eftir, að brot var framið úti á sjó, þetta væri því að þakka, hve góð samvinna væri með gæsluskipum, sem gættu landhelginnar og flugvélunum, sem aðstoða við eftirlitið. Fiugmaðurinn Mr. L. L. King, sá frá vél sinni, fjölda er- lendra skipa að veiðum við Sizewell Bank, og gerði þegar umsjónarmanni fiskimála, aðvart. Hann sendi þegar gæzluskipinu »Godetia«, skeyti, en það skip var þá fyrir utan Sheerness. »Godetia« sendi þegar tilkynningu, til gæsiuskipsins »Selkirk«, sem var á leiðinni frá Ports- mouth til Lowestoft, sem varð til þess, að skipið »Maxime« var tekið 2,2 sjómíl- um frá landi og liafði þar verið að veið- um. Skipstjóri sýndi kort sitt og stóð fast á því, að hann hefði verið 4 mílur frá landi, en sjókort hans var svo gamalt og ófullkomið, að á því sást að eins einn viti á svœðinu, sem hann var á; var það Orford-vitinn. Fiskur var á þilfari, nýveiddur; bar yfirmaður á »Selkirk« það fram, að skipstjóri hefði ekki náð vörpunni inn á skip, er hann kom á þilfarið. Að gefnu tilefni bar skipstjóri Admont það fram í réttinum, að hann hefði ekki getað kveikt hin lögboðnu ljós sökum þess, að búið var að eyða allri steinolí- unni. Skipstjóra Admont, var dæmd hin hæzta sekt, sem eru 10 pund Sterling; málskostnað varð hann að greiða £ 4. 8 sh. 6 d. og afli og veiðarfæri gerð upp- tæk. Veiðarfæri mátti ekki selja fyr en að mánuði liðnum, svo skipstjóri ætti eigi kost á að ná þeim aftur fyrir sama sem ekkert. Sölufyrirkomulag á fisksölutorgunum í Hull og Grímsby. Fyrirkomulag í Hull. Allur fiskur á að vera kominn á torgin fyrir klukkan 9 á morgnana, því þá koma uppboðshaldar- ar og væntanlegir kaupendur. Hver tegund af fiski er flokkuð i þrent. Þorskur (Cod) (yfir 24 þuml.), stút- ungur (Sprags) (16—24 þuml.) og þyrsk- lingur (Codlings). Ýsa. Stórýsa (Jumbo Haddock), mið- lungsýsa (Medium), smáýsa (Small). Koli. Besta tegund (Plaice best), meðal stærð (Medium), smár (Small). Stór lúða er ávalt seld í stykkjatali; berist lítið að á markaðin, þá er smærri lúða seld í stykkjatali, annars í Kitta- tali; 1 kit = 10 stones = 140 lbs = 63,5

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.