Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1929, Blaðsíða 9

Ægir - 01.11.1929, Blaðsíða 9
ÆGIR 257 fremur lítur Fjórðungsþingið svo á, að Fiskifélagsstjórnin brýni fyrir erindrek- um sinum, að þeir glæði áhuga fiski- og útgerðarmanna með fyrirlestrum um samvinnumál. (Umræðum frestað). 4. fundur 7. nóv. kl. 4 síðd. — Allir fulltrúar mættir. 1. Samlöif otr aamviima. Fram- haldsumræður um þetta mál, en að þeim loknum var tili. borin upp og samþykt með öllum atkvæðum. 2. Iiagrabreytinirar. Nefndin lagði fram svohljóðandi tillögu: Fjórðungsþingið felur Fiskiþingsfull- trúum sínum að vinna að því á kom- andi Fiskifélagsþingi, að breytt verði lög- um Fiskifélagsins i þessa átt: 1. Að ákvæðum 6. og 7 gr. um kosn- ingu fulltrúa á Fiskiþing verði breytt í þá átt, að allir fulltráar verði fram- vegis kosnir af fjórðungsþingunum. 2. Að felt verði í burtu ákvæði 19. gr., um að samþykki aðalfundar þurfi til að ákvæðum laganna um Fiskiþing megi breyta. 3. Að breytt verði lögum um Fjórðungs- þing í þá átt meðal annars, að fjórð- ungssamband deilda fái eitthvert fé til umráða til verklegra framkvæmda í fjórðungnum, og að lögunum að öðru leyti verði breytl samkv. þvi. Tillagan borin upp til atkvæða í þrennu Iagi. Inngangur og 1. 1. samþykt með samhljóða atkv., 2. og 3. liður samþ. með öllum atkv. 3. Láiiftstofnanlr fyrir sjávarút- veBÍnn. Nefndin lagði fram svohljóð- andi álit: Fjórðungsþingið felst á stefnu frum- varps til laga um Fiskiveiðasjóð Islands frá síðasta Alþingi (þingskj. 43) og vill að haldið sé við upphaflegan tilgang sjóðs- ins: Ián til bátakaupa. Vaxtabréfasölu samkv. frumv. telur Fjórðungsþingið at- hugaverða, en sjóðinn alt of litinn. Álít- ur að hann megi ekki minni vera en meiri hluti sjávarútvegsnefndar neðri deildar stingur upp á í breylingartillög- um við frumv, (þingskj. 248) en sam- kvæmt þeim er ætlast til að hann verðí. 1. Eignir hins gamla Fiskiveiðasjóðs. 2. 60000 kr. árlegt framlag tii sjóðsins úr ríkissjóði í 10 ár og þaðan af 30000 kr. á ári. 3. 500 þúsund kr. sem ríkissjóður með lántöku eða annan hátt leggi til um leið og lögin öðlast gildi. Rekstrarlánanefnd við sjóðinn álitur Fjórðungsþingið æskilega, en telur hana ekki geta orðið að verulegu gagni fyr en hægt er að leggja henni til 3—4 milj. kr. að stofnfé. Fyrri hluti álitsins, með liðnum 1—3 samþyktur með 6:1 atkv., seinni hlutinn (um rekstrarlánadeild), samþ. með öll- um greiddum atkv. 4. 'Witamál. Nefndin lagði fram svo- hljóðandi tillögu: Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþing- ið, að veita fé úr Fiskifélagssjóði á næsta ári, til þess að sett verði þá tvö leiðarljós á Hornafirði, er sýni siglinga- leið milli Eystraskers og Borgeyjarboða. Samþ. með öllum atkv. 5. fundur 8. nóv. kl. 10 f. h. — Allir fulltrúar mættir. 1. Straiulvarnar- og- björgunar- niál. Nefndin i málinu klotnaði og voru lagðar fram tvær tillögur, frá meiri og minni hluta. Tillaga meiri hlutans (M. P. og V. Á.): 1. Að skora á Fiskiþingið að það hlntist til um við stjórnarvöldin, að strand- varnirnar verði auknar að mun við Austurland, sérstaklega á tímabilinu frá 15. mars til 15. júní og frá 1. ágúst til áramóta.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.