Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1929, Page 20

Ægir - 01.11.1929, Page 20
268 ÆGIR á fiskiveiðum við Island og Færeyjar árið 1878, 267 skip (flest skonnortur) og á þeim voru alls 4723 menn, veiðarfæri, handfæri, og öfluðu skipin alls 13 þús- und smálestir af stórum feitum þorski. Fyrir þann afla fengu Frakkar 7,966,160 franka. Löng vera á sama skipi. Skipstjóri N. P. Hansen á færeyska fiskiskipinu »C. M. Slateroc, (sem er kútter, smíðaður í Rye á Englandi 1887, 86 brútto smálestir) hefir verið á sama skip- inu í 25 ár. N. P. Hansen er fæddur í t*órshöfn árið 1890 og 15 ára fór hann sína fyrslu ferð með »Slater« og hefir síðan fylgt skipinu. Árin 1916—22 var hann stýri- maður en síðan skipstjóri. Færeyingar nefna skipið í daglegu tali »Slatrið« og síðast liðið sumar var það á veiðum við Grænland og aflaði vel. J. E. Böggild dáinn. Nýlega er dáinn i Montreal í Kanada J. E. Böggild, sem var fyrsti sendiherra Dana hér, frá 1919 til 1924. Hefir hann. siðan hann fór héðan, verið aðalræðis- maður Dana. með sendiherratign í Mont- real. Hann var 51 árs og banameinið var hjartasjúkdómur. Lík hans verður brent þar vestra og askan flutt til Ribe. J. E. Böggild var af íslenzkri ætt. Hann var vel látinn, undi hér vel hag sín- um og átti hér marga vini. Andlátsfregnir. ólajur Rósenkranz, leikfimiskennari, andaðist að heimili sínu hér í bænum 14. nóv. Hann var 77 ára að aldri. Gleðilegt nýjár! Ólafur var hinn mesti merkismaður, enda vinsæll mjög. Um marga ára skeið var hann starfsmaður Háskólans, síðustu árin ritari hans. Naut hann mikils álits í þeirri stöðu. Bogi Th. Melsieð andaðist i Kaup- mannahöfn 12. nóv. Lík hans var flutt hingað til lands og jarðsett að Klaustur- hólum í Grímsnesi hinn 26. nóv. Veiðarfæramerki. Linumerki M/b. »Hermóðs« frá Akra- nesi er; Sýslumerkið blátt á miðjum taum. Krómgult beggja vegna við. Sigurður Hallbjarnarson. Varðskipið „Þór“. Laugardagskvöldið 21. desember strand- aði »Þór« milli Skagastrandar og Blöndu- óss. Togarinn »Hannes ráðherra« náði mönnunnm úr skipinu um kl. 10 f. h. mánudaginn næsta — og björguðust allir; kom »Ægir« um líkt leyti að strand- staðnum, tók skipsmenn og flutti þá suður. Á aðfangadagskvöld kom hann til Reykjavikur og leið hinum skipreika mönnuin vel eftir atvikum. Sjóréttur var haldinn 28. des. Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson. Prentsmi8jan Qutenberg.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.