Ægir - 01.02.1930, Side 22
48
ÆGIR
sem margir Reykvíkingar munu minnast
með þakklátum huga.
Hér í bæ var þá mikið stunduð útgerð
á opnum skipum og var Amundi þá jafnan
formaður og þótti heppinn og aðgætinn
stjórnari.
Jón Pórðarson var lengi formaður og
sjósóknari rnikill, en þegar farið var að
vanda verkun á fiski, sem mest mun hafa
verið fyrir forgöngu Edvard Simsens, var
Jón Þórðarson fenginn til þess að meta
fiskinn.
Spánverjar sóltu þá sjálfir mest af þeim
fiski er þeir keyptu hér á höfnum við Faxa-
flóa, en það voru Reykjavík, Hafnarfjörður
og Keflavík. Var Jón Þórðarson þá jafnan
um boið í þessum skipum og sá um hleðslu
fisksins í skipin. Annar matsmaður var
Jóhannes Olsen og í viðlögum Álexíus
lögregluþjónn áður Jóhannes tók við. 1880
hætti Jón Rórðarson matsstörfum og tók
Ámundi þá við starfi hans og hefir haft
það á hendi síðan, eða um 50 ár.
Þegar ákveðið var með Iögum að setja
yfirfiskimatsmann hér i Reykjavík, sneri
landsstjórnin sér til Ámunda og vildi fela
honum starfið, en hann færðist undan því
og benti á Þorstein Guðmundsson til þess
starfa og munu allir þeir er minnast Þor-
steins sál. Guðmundssonar og starfsemi
hans, hafa þótt það viturlega ráðið.
Fiskimat er ábyrgðarmikið og vanda-
samt starf og veltur því líka mikið á því,
að það sé rækt með gætni og samvizku-
semi, því mikið er komið undir því fyrir
þjóð vora, að saltfiskurinn nái að halda
því góða áliti, sem hann hefir komist í
hjá Spánverjum. Mun það allra manna
mál, þeirra er til þekkja, að þetta starf
hafi Ámundi leyst af hendi með stakri
kostgæfni og vandvirkni.
Þrátt fyrir miklar sorgir og ýmiskonar
andstreymi hefir Ámundi borið aldur sinn
vel, og til þessa tíma gengið að starfi sinu,
sem aðrir fulltíða menn, enda heldur hann
sjón og heyrn þó líkamsþolið sé eðlilega
eigi eins og á yngri árum. Vinir og kunn-
ingjar flytja honum nú beztu heillaóskir
á afmælisdegi hans með þakklæti fyrir
vel unnið dagsverk og alla samvinnu með
þeirri ósk, að æfikvöldið megi verða hon-
um bjait og fagurt.
Geir Sigurðsson.
Mannalát.
Hinn 16. janúar s. 1. andaðist fram-
kvæmdarstjóri Skúli Jónsson, úr lungna-
bólgu.
18. janúar andaðist hér í bæ, fyrver-
andi bankastjóri Björn Sigurðsson, eftir
langa vanheilsu.
Húsameistari Steingrímur Guðmundsson
andaðist hér í bæ hinn 28. janúar.
Sama dag varð bráðkvaddur, hrepp-
stjóri Sigurður Kjartanssan í Sandgerði.
2. febrúar lést hér í bæ útgerðarmaður
Magnús Thorberg.