Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1930, Page 12

Ægir - 01.08.1930, Page 12
178 ÆGIR garð, sjógarðinn svo nefnda, fyrir öllu landi sínu, til þess að hindra sjávar- gang. Nágrannar hans gerðu siðar hið sama. Dálítill styrkur var veittur tilþess verks, 4 kr. á hvern faðm. Sjórinn hef- ur á liðnum öldum brotið mikið fram- an af ströndinni, en með garði þessum eru honum nú takmörk sett. Þegar Fiskifélag íslands hóf starf sitt, varð hann strax, sem vænta mátti á- hugasamur um starf þess og varð hann því fyrsti og aðalstofnandi fiskideidar- innar á Eyrarbakka, og formaður henn- ar, þar til hann fyrir fáum árum gaf ekki kost á sér, og var þá um leið kjör- inn heiðursfélagi deildarinnar, enda hafði hann unnið fyrir deildina meira en nokkur annar meðlimur hennar. Guðm. lét yfirleitt öil framfaramál til sin taka og hefur fengist við margt um dagana, en það munu ííestir mæla, að með sjómennskuslarfi sinu haíi hann reist sér óbrotgjarnan minnisvarða. Is- lenzk sjómannastétt minnist hans þvi með virðingu og þakklæti nú á áttræðis- afmælinu og óskar honum góðrar og friðsællar elli. Kunnugur. Jarðskjálftar. Laust fyrir miðaftan þriðjudaginn 23. júlí 1929, sama dag, sem kaþólska kirkj- an í Reykjavík var vigð, kom hér kippur, sem hristi allt Suðurlandsundirlendið og fleiri svæði Islands. Ári síðar 23. júlí 1930 kom hinn mikli jarðskjálfti, sem blöð hér hafa getið um, á svæðinu kringum Neapel (Vesuv) á ítaliu og má telja jarðskjálftakippi þá, meðal hinna hörðustu, er sögur fara af. Hinar fyrstu fréttir um þennan voða viðburð töldu, að 1778 menn höfðu látið lífið, og 4,264 særst, en nákvæmar eru þær tölur ekki og mun manndauði meiri, en hús og heil þorp hrundu svo, að tala heimilslausra var þegar eftir kippina, frek milljón manna. Við þessi ósköp bættist svo, að meðan verið var að bjarga og liðsinna hinum særðu, skall á fellibilur, sem allt ætlaði ofan að keyra og gerði björgun nálega óframkvæmanlega um tíma. Jarðskjálfti þessi líkist mjög að tjóni, þeim, er fór um sama svæði árið 1883 þegar 2400 manns fórust undir húsum þeim er þá hrundu, eru þessir jarðskjálft- ar einir þeir mestu, er orðið hafa á Ítalíu, þótt ekki komist þeir í sam- jöfnuð við jarðskjálftann f Messina, árið 1908, er 83 þúsund manna létu lífið á fáum klukkustundum. Á uppstigningardag 8. maí 1902 sprakk fjallið Mont Pelée á eyjunni Martinique í Vestindium og fór hraunflóðið yfir bæinn St. Pierre, sem stóð skamt frá fjallinu. Dynkir miklir höfðu verið í jörðu 1—2 dögum áður en fjallið sprakk og var það síðar álit manna, að hefði þvi verið gaumur gefinn, mundi mann- tjón hafa orðið minna. Á hálfri klukkustund fórust þar í hraun- tlóðinu 36 þúsundir manna og að eins fáir menn kómust af. Hin siðustu árin virðist svo, sem jarðskjálftar fari í vöxt og reyna nú fræðimenn í þeirri grein að komast að hvað því valdi, en hvað sem því líður er það áreiðanlegt, að hemlu á það feikna-afls sem hristir og skekur jarðarskorpuna, lyftir fjöllum jafnt sem smákofum, setur enginn mann- legur máttur.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.