Ægir - 01.09.1931, Side 3
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS.
24. árg.
Reykjavík. — Sept. 1931.
Nr. 9.
Fjármálahorfur Norðurálfu.
Englandsbanki stöðvar gullinnlausn seðla.
Flestöllum kauphöllum lokað.
Fellur gengi sterlingspundsins?
Fréttastofu blaðamarma hafa borist
eftirfarandi skeyti:
London 20. sept.
Englandsbanki hefur hækkað forvexti
um IV2”/0 UPP * 6% frá og með mánu-
degi að telja.
London 21. sept.
Ákveðið hefur verið að hverfa um
stundarsakir frá innlausn seðla og í því
skyni að leita samþykkis þingsins á frum-
varpi um það efni, sem borið verður
fram á mánudag (21.). Einnig hefur verið
ákveðið að loka kauphöllinni á mánu-
dag. Opinber tilkynning segir, að ákvörð-
unin um gullinnlausnarskyldunnar sé
fram komin vegna þess, að síðan í miðj-
um júlí hafi meir en 200 miljónir sterl-
ingspunda horfið úr umferð á peninga-
markaðinum í London. — Ákvörðun
þessi tekur ekki til skuldbindinga stjórn-
arinnar eða Englandsbanka, sem greidd-
ar verða í erlendri mynt.
London 21. sept.
Hagfræðingurinn frægi, Sir GeorgePaish
hefur í einkaviðtali við United Press lát-
ið í Ijós skoðun sína á afleiðingunum af
því, að horfið hefur verið frá gullinn-
lausn. Telur hann, að afleiðingarnar geti
orðið mjög alvarlegar, en hverjar afleið-
ingarnar verði, sé fyrst og fremst undir
því komið, hver áhrif þetta hefurí Banda-
ríkjunum og Frakklandi. Komi eigifram
ótti við afleiðingarnar í þessum löndum,
eru eigi miklar líkur til að sterlingspund
falli mjög í verði. Hins vegar, ef Banda-
rikin og Frakkland leggja áherslu á sölu
sterlingspunda, vegna þverrandi trausts
á Bretlandi, gæti sterlingspundið fallið
mjög í verði, en telur þetta þó ótrúlegt,
vegna þess að Bretland standi á örugg-
um fjárhagslegum grundvelli.
Sir JosiahStamp forstj. Englandsbanka
hefur sagt í einkaviðtali við United Press,
að afleiðingarnar af aðgerðum sljórnar-
innar sé að miklu leyti undir því komn-
ar, hvert traust aðrar þjóðir beri til Bret-
lands framvegis. Bretland, sagði Sir Josiah
var neytt tíl þess að hverfa frá gullinn-
lausn vegna aðstreymis fólks í bankann,
til þess að taka út fé, en aðstreymi þetta
varð að stöðva, afþeirri einföldu ástæðu,
að meira gull er ekki fyrir hendi.