Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 5

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 5
ÆGIR 173 Saltfiskssalan. Það hefur verið hljótt um fiskverzlun- ina i »Ægi« þetta sumar og ber margt til þess. Nógar hafa fréttir verið um mark- aðshorfur og verð, skrifstofa Fskifélags- ins oft hringd upp, til þess að svara fyrir- spurnum um það, og sumum þótt það bera vott um kæruleysi, áhugaleysi og jafnvel leti, að svör voru ekki á reiðum höndum. Að vísu mátti svara og skýra frá verði því, sem nefnt var manna á meðal þann og þann daginn og grennslast var eftir, en þar sem það var svo óstöðugt, að annað verð var nefnt síðari hluta dags en það, sem var talað var fyrri hlutann, þá var ekki árennilegt, einkum þar sem þessi breyting á verðinu átti sér daglega stað, að senda skeyti um fiskverð útum land, því það var að eins tíl að gera glundroða, þar sem ekki var auðið að byggja á neinu. Gengi pesetans varð afarlágt og breytt- ist að heita mátti daglega, sem gerði það, að verkum, að engínn þorði að festa fisk- kaup. Auk þess verða menn að skilja það, að neyzluvörur á Spáni og yfirleitt við- ast hvar, eru fremur ódýrar og mun hið sama eiga sér þar stað, sem annarsstað- ar, að matvæli keppa hver við önnur, Það sem þykir of dýrt fær að liggja og annað ódýrara keypt í staðinn. Fiskverð íslendinga þarf að vera hátt, vegna hins mikla útgerðarkostnaðar og útgerð því dauðadæmd fáist ekki það verð fyrir fiskinn, sem borgar úthaldið og gefur útgerðinni og fiskimönnum það fyrir vinnu sína, sem þarfir lífsins heimta. Gera má ráð fyrir, að neyzluvörur á Spáni séu í liku verði nú og þær voru fyrir 35 árum. Þá var fiskverð hér um 40 kr. hvert skpd. Að verka eitt skpd. af fiski kostaði þá um 3 kr. og fiski var náð á ódýra báta, eða 2—3000 króna skútur, með hinu ódýrasta veiðarfæri, handfærinu, beitukostnaður lítill, stund- um enginn og nauðsynjavörur i lágu verði. Vinnulaun voru lítil, en fyrir eina krónu mátti þó fá 6—7 pund af góðu kjöti. Um útkomu fiskimanna þá verður ekki talað hér, lífskjör voru að öllu frá- brugðin því, sem nú eru þau. Nú er fiski náð á afardýra botnvörp- unga, mótorbáta og trillubáta. Afþessum skipum eru hinir síðustu ódýrastir, og mun láta nærri, að nýir kosti þeir helm- ing andvirðis kúttara þeirra, sem hing- að voru keyptir frá Englandi 1897, þeg- ar tilheyrandi veiðarfæri eru reiknuð með. Beitukostnaður mótorbáta hefur ávallt verið mikill og eitt árið var hann svo, að 70 skpd. af fiski, með 100 kr. verði varð að taka frá, á 14 smálesta mótor- bát, að eins til að greiða beituna. 1 dag, 22. september, veit enginn um fiskverð, því enginn vill kaupa, en þeir sem vita bezt telja svo, að væri auðið að selja fisk í dag, myndi verð á þorski vera 65 kr. skpd. og Labradorfiskur 45, en hér mun varla talað um annað sem stendur, en umboðssölu. Þegar nú þess er gætt, að 20 kr., og jafnvel meira, kost- ar nú að verka hvert skpd. af fiski og ýmislegur kostnaður leggst á hann að auki, t. d. umbúðir, sem ekki þekktust meðan förmum var »stúfað«, þá er út- litið ljótt. Allt er gert, sem hugsast getur til að vanda verkun fisksins; fyrir skömmu samþykkt ný fiskimatslög og allt miðar til þess, að verzlunarvaran liki og fyrir hana fáist það verð, sem sé í einhverju samræmi við útgerðar- og annan kostn- að, sem fylgir þorskveiðum nú á tímum, sé ekki svo hlýtur þessi atvinnuvegur þjóðarinnar að leggjast í rústir.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.