Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 4

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 4
172 ÆGIR London 21. sept. Khöfn: — Kauphöllin hér er lokuð í dag, einnig kauphallirnar i Osló ogStokk- hólmi. Berlín: — Kauphallarskrásetningum frestað óákveðinn tíma. Engin viðskipti milli bankanna eins og stendur. Hamborg: — Kauphöllinni lokað óá- kveðinn tíma. Berlln: — Öllum kauphöllum Þýzka- lands hefur verið lokað. Amsterdam: — Kauphöllinni lokað í dag. Helsingfors: — Finnlandsbanki frestar skrásetningu á gengi erlendrar myntar. Paris: — Mikið verðhrun varð á kaup- höllinni í morgun, fáum minútum eftir að opnað var. Ymis helztu verðbréf féllu i verði um 10°/o. Danzig: — Senalið hefur samþykktað afnema það fyrirkomulag að leggja sterl- ingspund til grundvallar myntinni og miða héðan í frá við gullgildi. Khöfn 21. sept. Ríkisbanki Svia hefur hækkað forvexti úr 4 í 5%. Sterlingspund er skrásett í Stokkhólmi í dag á kr. 17.25. London 21. sept. Kauphöllinni í London verður lokað á morgun (22.). Khöfn: — Gengisskráning á erlendri mynt hefur verið frestað. Ákvörðun þessi var tekin á fundi bankastjórnar Þjóð- bankans. Stóð fundurinn yfir í tvær stundir. Mac Donald talar við þjðð sína gegn- um útvarpið. 1 gærkvöldi hélt MacDonald forsætis- ráðherra Breta ræðu í breska útvarpið, þar sem hann lýsti fjármálaástandinu, og ráðstöfunum þeim, sem gerðar hafa verið, til þess að stöðva verðhrun og gengis- fall. Sagði hann enga hættu á því að gengi sterlingspunds gæti fallið nema lítið eitt og yrði þess eigi langt að bíða, að það næði fullu gengi aftur. Ef erlendir bankar ætluðu að nota sér þau vandræði, sem Bretar hefðu ratað í, nú í bili, þá mundi stjórn Breta grípa til sinna ráða, sem myndu hrífa, þegar þar að kæmi. London 21. sept. Snowden fjármálaráðherra lagði í dag fyrir neðri málstofuna frumvarp til laga viðvíkjandi gullinnlausn seðla (sbr. fyrra skeyti). Kvað hann ríkisstjórninni hafa borist bréf frá Englandsbanka á laugar- dag þess efnis, að lán það sem fengist hefði frá Frakklandi og Bandarikjunum væri á þrotum. Englandsbanki lagði því fast að stjórninni að sjá svo um, að bankinn yrði leystur frá gullinnlausnar- skyldunni, þar sem svo brýna nauðsyn bæri til. Stjórnin skýrði ríkisstjórunum i Bandaríkjunum og Frakklandi í trúnaði frá því hvernig ástatt væri á föstudag og leitaði álits þeirra. Svar beggja ríkis- stjórna var vinsamlegt, en engar horfur taldar á frekari lánum. Horfurnar á laug- ardag voru svo alvarlegar, að eina úr- ræðið var að hverfa frá gullinnlausn um stundarsakir. »Ég sé enga ástæðu til, að sterlingspund falli í verði að nokkru ráði til nokkurs teljandi tíma, ef fjármálum Bretlands verður stjórnað af hyggindtim og gætni«. „Hávarður ísfirðingur" er hættur veiðum og hefur aflað í 2 mánuði 32370 tn. þar af i bræðslu 20100 mál. »/».

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.