Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 7

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 7
ÆGIR 175 til að benda á breytingu á grísku salt- fisksverzluninni. Fyr meir kom að eins franskur lavé á markaðinn, en árið 1930, var í Piræus smíðað flskþurkunarhús, fyrst eitt, svo annað. Fyrirkomulag þurkhúsanna að innan, er enn mjög ábótavant, en líkindi eru til, að þeim verði breytt til batnað- ar. Ráðgert er að auka tölu þerra. Hinir grísku fiskkaupmenn hafa neyðst til að ráðast í þetta til þess að bæta útlit flsks- ins, sem eins og áður er sagt, er fyrir mestu þar í landi, með þvi nýverkaður fiskur er fallegri útlits, en sá sem verk- aður er fyrir mörgum vikum eða mán- uðum. Þurkhúsin í Piræus, hafa fengið nokkuð at óverkuðum fiski (»vert«) frá Frakklandi og síðar frá Rússum (sóvjet). Nokkru síðar í marzmánuði þ. á. keyptu Grikkir beint frá íslandi með umskipun í Neapel, 50 smálestir af óverkuðum (»vert«) fiski. I meira en eill ár hafa Grikkir talað um að mynda fiskveiða- og fiskverkun- arfélag, en til þessa hafa engar’fram- kvæmdir orðið. Hin síðastliðnu fimm ár, hefur fisk- innflutningur til Grikklands verið sem hér segir, talið í qvintölum. 1926 1927 1928 1929 1930 Frakkland 66.814 75.897 58.395 62.559 44.109 Canada 31,603 29.862 37.509 19.329 26.153 Bandaríkin 56 6.179 40 378 » Bretland 2.814 7.986 2.328 43.55 4176 Önnur lönd 127 5.290 129 2.650 7.685 Samt. 101.414 125.214 98.891 89.271 82.123 (Sent frá Stjórnarráðinu 25. ágúst 1931.) Mótornámsskeið. Athygli skal vakin ® mótornámsskeiði því, sem Fiskifélag íslands ætlar að halda einhversstaðar við Faxaflóa í haust og auglýst er hér í blaðinu. Lækkun á aðflutningsgjaldi. Frá 31. júlí til 30. október næstkom- andi er fjármálaráðuneytinu pólska veitt heimild til þess að lækka aðflutnings- gjald af þurkuðum saltfiski niðurí9°/oaf hinu lögákveðna aðflutningsgjaldi. (Frá Stjórnarráðinu). Eimskipið „Rex“. 1 fyrstu viku ágústmánaðar s, 1., var ítalska skipinu »Rex« (konungur) hleypt af stokkunum á Ausaldos skipasmíða- stöð í Sestri Ponente á Ítalíu. Um smíði þessa skips hefur mikið verið rætt, því i fyrsta lagi er það hið fyrsta skip, sem Italir láta smíða, sem er yfir 40 þúsund smálestir og í öðru lagi mun áreiðanlegt, að það fær »hið bláa band« Atlantshafs- ins og eru mikil líkindi til, að það haldi því nokkur ár. »Rex« er 895'6" að Iengd á þilfari og breidd skipsins er 103'4". Það er um 45 þús. Rrúttolestir og í því eru 14 vatns- held rúm ; getur skipið flotið með full- um farmi, þótt þrjú þeirra fyllist af sjó. Þilför eru ellefu og farþegaíbúðir hinar skrautlegustu. Það getur flutt 1200 far- þega og skipverjar eru 800. Auk samkvæmissala er leikhús í skip- inu, tvær sundhallir og bílageymsla. Gufu- vélar eru fjórar og hafa allar yfirhitun og eru þær hver fyrir sig i vatnsþéttu rúmi. Skrúfurnar eru fjórar og alls hafa hinar fjórar vélar 120 þúsund hestöfl, sem eiga að knýja skipið rúmar 27 sjó- mílur á klukkustund. Gufukatlarnir eru 14 og vélarúmið er 450 feta langt. Eig- andi þessa mikla skips er skipafélagið »Navigazione Generale Italiana««.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.