Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 13

Ægir - 01.09.1931, Blaðsíða 13
ÆGIR 181 Refaveiðar. Á vetrum eru refir veiddir og síðast- liðinn vetur var veiðin með mesta móti. Uppboð á tófuskinnum verður haldið í febrúar og má búast við likri sölu og síðastliðið ár, þegar met varsett. Aðeins i Júlianehaabs-héraði, voru skotnir og veiddir 1600 refir. Refaveiðar eru Græn- lendingum drjúg tekjulind og þýðingar- miklar fyrir landið allt. Verð skinnanna fer eftir gæðum. Selveiðar. Þetta ár hafa selveiðar verið með mesta móti. Selurinn hefur hörfað undan ísn- um í stórhópum. Selskinnin nota Græn- lendingar að mestu sjálflr, þar sem skort- ur var orðinn til báta og klæðnaðar sök- um þess hve lítið hefur verið umselhin síðustu árin. Það er þessi skortur, sem hefur ýtt undir að Norðurálfuklæðnaður fer að útbreiðast þar í landi. Þessi skort- ur á skinnum á einnig sinn þátt í meiri innflutningi á vörum og húsbyggingum, sem fara mjög í vöxt. Bregðist selveiði, hefur það í för með sér, að matvæli og klæðnað verður að flytja inn frá öðrum löndum, og til þess að koma þeim vörum fyrir, verður að smíða verzlunar- og geymsluhús og verzl- unarstaðir rísa upp, Sauðfjárrœkt. 1 Júlíanehaabs-héraði, eru nú um 6000 fullorðnar ær og eykst bústofn sá hröð- um fetum. Þar er nýtýzku sláturhús þar sem kindum er slátrað, kjöt saltað í tunnur til útflutnings og hefur sala þess gengið mjög vel. Ullin af grænlenzku kindunum, (sem eru af íslenzkum stofni) er löng og grófger, en prýðilega unnið úr henni. Grænlenzku stúlkurnar hafa lært að kemba, spinna og prjóna og hver- vetna má líta karla, konur og börn, sem eru i heimaunnum ullarfötum. N. H. F. Tidskrift. t Skipstjóri Þórarinn Flysenring andaðist á spítalanum í Rönne á Borg- undarhólmi, aðfaranótt hins 28. ágúst, eftir upskurð. Þórarinn var elzti sonur kaupmanns Ágústs Flygenring og fæddist i Hafnarfirði, fór ungur i siglingar og fékk ágæta undirstöðu til sjómennsku, einkum á skólaskipinu »Viking«. Þrjú siðustu árin var hann í þjónustu danska steinolíufélagsins, fyrst stýrimað- ur á skipum þeirra en fékk brátt skip- stjórastöðu, er félagið fór að taka eftir dugnaði hans og árvekni. Nú var hann skipstjóri á olíuflutnings- skipinu »Danía«. Lá skipið í Danzig er hann varð lasinn og var honum þar ráðlagt að leggjast á spitala, en það vildi hann ekki og lagði af stað á skipinu þaðan. Hinn 27. ágústsíðdegis, var radioskeyti sent frá skipinu til hafnsögumanna í Rönne og þeir heðnir að koma út að því þegar það kæmi og færi inn í höfn- ina, til þess að ná í lækni, og til Rönne kom það kl. 7 e. h. Á lóðsbátnum fór út læknir Þórður Guðjohnsen og skoð- aði Þórarinn, sem þá leið óþolandi kvalir og sá Guðjohnsen þegar, að hér var um garnaflækju að ræða. Þórarinn var þeg- ar tekinn á spítala og lagður á skurðar- borðið, en það var of seint, um nóttina dó hann. Hann var 37 ára gamall. Þórður Guðjohnsen, sem hérernefnd- ur, er sonur Þórðar kaupmanns Guð- johnsens sem var á Húsavík ; hefur Þórð- ur verið læknir í Rönne í mörg ár.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.