Ægir - 01.09.1931, Síða 14
182
ÆGIR
Síldveiði Dana við ísland
sumarið 1931.
Hinn 29. ágúst lagðist frystiskipið »Th.
Stauning« við »Asiatisk Plads« i Kaup-
mannahöfn og var þegar byrjað að taka
í land síldarfarm þann, sem skipið flutti
frá íslandi. Er skipið hið fyrsta, sem kem-
ur þaðan.
Framkvæmdastjóri Halfdan Hendrik-
sen, þingmaður, sem bezt hefur gengið
fram, að koma síldveiðaleiðangri Dana
af stað, segir, að þau 25 ár, sem hann
hafi haft verzlun með höndum á sjávar-
afurðum, hafi hann að eins einu sinni
séð jafngóðan og fallegan síldarfarm.
Síldveiðin hefur farið fram úr öllum
vonum, Skipið flutti 20 þús. tunnur af
sild, eins og búist var við, en kom fyr
heim en vænta mátti og er þar um sparn-
að að ræða.
Síldarfarmurinn var að mestu seldur
og fóru 4000 tunnur til Stockholms og
um 2000 tunnur verða seldar í Dan-
mörku. Fyrstu daga septembermánaðar
er búist við hinum tveim skipum, sem
við Islands voru, þeim »Fulton« og»Hans
Egede«, sem einnig flytja síld, sem allri
er ráðstafað.
55 danskir fiskimenn hafa haft atvinnu
við síldveiðina og auk þess skipshafnir
á 10 færeyskum skipum, sem fluttu afla
sinn til áðurnefndra þriggja skipa. Fær-
eyingarnir eru þegar komnir heim.
Fiskiveiðahlutafélagið »lsvirki« á Fær-
eyjum hefur gert skipin út.
Færeysk fiskiskip. Um miðjan sept.
komu eftirtöld færeysk fiskiskip frá Græn-
landi og höfðu góðanafla: »Svinoy« með
97 þúsund fiska, »Pola« með 103 þús.,
»Phi-Phi« með 115 þús. og »Skálanes«
með 137 þúsund.
Veðurathuganir.
Hinn 9. september, kom til Reykja-
víkur hollenzkt eftirlitsskip, er »Naufilus«
heitir.
Flutti það tvo ílugmenn úr hollenzka
hernum, sem hér eiga að dvelja næsta
vetur og rannsaka hita og rakastig uppi
í loftinu, þegar flugfært er, í sambandi
við veðurathuganir, sem Hollendingar
hafa tekið að sér að gera hér og er lið-
ur í alþjóðarannsóknum á veðurfari og
náltúrufyrirbrigðum, sem þegar er byrj-
að og er starfssvið Norður-íshafið. Flug-
menn þeir er með »Nautilus« komu heita
Vish og van Giesen.
Vélbátur sekkur.
Einn maður drukknar.
Snemma morguns hinn 9. september,
kom vélskipið Víkingur inn á víkina í
Hnífsdal til þess að sækja smokk fyrir
óskar Halldórsson. Var þá fjöldi báta á
höfninni, sem sigldu að Víking. Þegar Vík-
ingur var að leggjast, sigldí vélbáturinn
Ölver frá Bolungarvik á vélbátinn Fræg,
einnig frá Bolungarvík. Við áreksturinn
lenti Frægur þvert fyrir stefni Víkings
og hvolfdi á svipstundu. Skipshöfnin
komst strax utan á Fræg, nema formað-
urinn, Jón Friðgeir Jónsson, sem haldið
er að hafi orðið fastur og fór hann nið-
ur með bátnum, sem sökk bráðlega
og Jón Friðgeir drukknaði. Viðstaddur
trillubátur bjargaði öðrum skipsmönn-
um. — Jón sál. var ungur maður um
tvítugt og einkar efnilegur. — Vélbátur-
inn Ölver var einnig hætt kominn.