Ægir - 01.09.1931, Qupperneq 19
ÆGIR
187
skipstjóri afhenda næsta ræðismanni ís-
lenzkum skrá þessa. Reynist vandkvæði
á að geyma muni þessa á skipinu, skal
skipstjóri annaðhvort afhenda ræðis-
manni þá eða selja þá með sem heppi-
legustum hætti.
30. gr. Deyi skipverji af sjúkdómi, slys-
um eða meiðslum og útgerðarmenn áttu
að kosta umönnun hans, þá skulu þeir
og kosta útförina.
Deyi íslenzkur skipverji á þeim tíma,
að ríkissjóði bar að greiða kostnaðinn
við umönnun hans, ber ríkissjóði einnig
að greiða útfararkostnað hans.
31. gr. Verði skipstjóri að skilja veik-
an eða slasaðan skivverja eftir erlendis í
umsjá ræðismanns, er honum skylt að
setja tryggingu fyrir kostnaði þeim við
umönnun skipverjans og annað, sem
útgerðarmanni er skylt að greiða, sam-
kvæmt 28. og 30. gr.
Kaup það, er skipverji kann að eiga
inni, skal greitt ræðismanni, ogmáskip-
verji eigi ráðstafa þvi, án leyfis ræðis-
manns, meðan hann er í umsjá hans.
Geti skipstjóri eigi fengið aðstoð ís-
lenzks ræðismanns og verði því að greiða
kostnað við umönnun íslenzks skipverja
vegna veikinda, er útgerðarmanni eigi
bar að greiða, getur hann krafist þess,
að það fé sé endurgreitt sér úr ríkissjóði.
Ákvæði næstu málsgr. hér að framan
gilda einnig um kostnað vegna erlends
skipverja, enda færi skipstjóri sönnur á
það með lækisvottorði, að nauðsynlegt
hafi verið að flytja skipverjann í land,
annaðhvort sjálfs hans vegna eða vegna
annara manna á skipinu, og að heilsu-
fari hans hafi i engu verið áfátt, er hann
réðist á skipið.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið
setur nánari reglur um umönnun, greftr-
un og heimsendingu skipverja samkv.
lögum þessum.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1931. — Nr. 7.
18. Á Glettinganesvitanum varkveikt
27. þ. m„ og sýnir hann hvítan tvíblossa
á 30 sek. bili: 2 + 5 + 2 + 21 = 30
sek. Ljósmagn 20 sm., ljósmál 15 sm.
Vitabyggingin er 16 m. hár, grár fer-
hyrndur turn með 3l/2 m. háu, gráu ljós-
keri. Hæð logans yfir sjó ca. 25 m. Lengd
13° 36Va', breidd 65° 30l/a'. Logtími 1. á-
gúst til 15. maí.
19. Eftir að búið var að mæla grunn-
leiðina fyrir Vatnsnesið á Húnaflóa hafa
þessi merki verið sett upp til bráðabirgða,
en endanleg leiðarmerki verða reist næsta
sumar.
Fyrir sunan bæinn Stapa er efra merk-
ið hvít grjótvarða með rauðu þrihyrn-
ingstoppmerki, og veit eitt hornið niður.
Breidd og lengd vörðunnar er 65°35'051/2"
n., 20^55'02^/i" v. Framvörður eru tvær,
skammt norðan við Stapabæinn, báðar
hvitar grjótvörður með rauðum þrihyrn-
ingstoppmerkjum, og veit eitt hornið
upp á þeim báðum. Breidd og lengd
varðanna er: nr. I 65°35'4572" n., 20°
54' 20V2" v., nr. II 65°35' 53" n, 20° 54'
09" v. Stefna efri vörðunnar mitt á
milli hinna réttv. 2041/,0, og er sjávar-
dýpið í þessari stefnu hvergi minna en
10 m. um fjöru.
Hindisvíkurmerkin eru þessi: Á klett-
unum austanmegin í vikinni er efra
merkið hvít grjótvarða með rauðu þrí-
hyrningstoppmerki, og veit eitt hornið
niður. Breidd og lengd vörðunnar er65°
40' 57V2" n., 20°41' 07" v. Frammerkin
eru tvö, á sjávarklettunum vestan við
Hindisvík, og er merki I hvít grjótvarða
með rauðu þríhyrningstoppmerki, og veit
eitt hornið upp, en merki II er hvit
timburgrind. Breidd og lengd þessara