Ægir - 01.09.1931, Side 20
188
ÆGIR
raerkja er : nr. I 65° 40' 227»" n., 20° 43'
42" v., nr. II 65° 40' 31" n., 20“ 43' 1272"
v. Stefna efri vörðunnar mitt á milli hinna
er réttv. 62°, og er sjávardýpið i þessari
stefnu hvergi minna en 10 m. um fjöru
nema á svæðinu milli efri Stapavörðu
þvert og Illugastaðabæjarins þvert, þar
sem dýpið er minnst 8,5 m.
Þegar komið er að austan, sé haldið í
vestur, um 1 lh sm. fyrir norðan Fá-
skrúðssker þangað til komið er í Stapa-
merkið. Stefnu þessari er haldið þangað
til Hindisvíkurmerkin bera saman, og er
haldið eftir þeim þangað til Reykjanes-
hyrna er að eins frí af Byrgisvíkurfjalli.
Þá er komið út úr skerjaklasanum.
20. Sjómerki nr. 64 a. og 65 a, fram-
vörðurnar á Bakkagerði í Borgarfirði
eystra hafa verið málaðar hvítar með
lóðréttri rauðri rönd.
21. Klukkuduílið á Akureyjarrifi (viti
nr. 14), hefur verið tekið upp til við-
gerðar. Til bráðabirgða hefur rautt hljóð-
laust dufl með stöng og kústi verið sett
á rifið.
Reykjavík 8. septbr. 1931.
Th. Krabbe
Takmörkun hvalaveiða.
NRP-fregn frá Noregi hermir, að Þjóð-
bandalagið hafi fallist á tillögu um al-
þjóðasamning á fyrirkomulagi og tak-
mörkun hvalaveiða.
Braadsland utanrikísmálaráðherra var
framsögumaður við umræðurnar. Er ráð-
gert að banna veiði sjaldgæfra hvalateg-
unda, ungra hvala og kvendýra. Það er
í ráði, að hvalaveiðaskrifstofan i Osló,
verði heimsmiðstöð fyrir vísindalega og
hagfræðilega starfsemi í sambandi við
hvalaveiðar.
Símskeyti frá Kaupmannahöfn
25. septbr. 1931.
Konsúlatið i Genúa símar hinn 25.
septbr.: »Samkvæmt tilskipun verður frá
og með deginum í dag, lagður 15% verð-
tollur á allar innfluttar vörur, nemaþær
sem sérstakir samningar eru um. Pessi
verðtollur nær einnig til saltfisksins.
Síldarafli Norðmanna
var alls 18. september 237.379 tunnur og
þar af kryddað 25.721 tunna. í fyrra
(1930) var afli alls 126.922 tn. og af því
kryddað 21.231 tn. Hin mikla veiði Finna
og Dana við ísland og svo hversu mikið
hefur verið saltað af síld, hefur orðið til
þess að lækka verð hennar. í Aalesund
hefur síldarverðið veríð 16 aurar hvert
kg. og er sunnar dregur hefur það verið
mun lægra, en að líkindum hafasiðustu
sendingar ekki verið fyrsta flokks vara.
Yerð síldarinnar 1930, var 24—27 a.
hvert kg., enda er verð hennar í ár hið
lægsta, sem verið hefur.
Afli sá, sem Aalesundsfiskimenn fengu,
er að mestu seldar.
Engin veruleg samtök hafa komist á
meðal íslenzkra flskimanna um sölu síld-
arinnar, og er svo sagt og mun rétt vera
að það er þýðingarlaust að gera samtök
þegar veiðar eru hættar og hver einstak-
ur reynir að selja sína sild eins háu
verði og auðið er og grípur hvert tæki-
færi sem gefst, til að koma henni út.
Eigi að halda verðinu uppi, verða fiski-
menn að mynda samtök, áður farið er
að veiða sildina.
Hinn 5. septbr. var búið að flytja út
frá Noregi 74.453 tn. af Íslandssíld og er
það meiri útflutningur en var í fyrra.