Ægir - 01.09.1931, Side 22
190
ÆGIR
Fjárkreppan.
Þegar síðasta síða þessa tbl. Ægis er
prentað, er allt í óvissu með gengi íslenzku
krónunnar. Heildsöluveizlanir í Reykja-
vík opnuðu ekki skrifstofur sínar mánu-
dag 28. septbr.
Togara hlekkist á.
Enskur togari með ísfisksflutning strandar
á Þistilfirði.
Ægir nær togaranum á flot aftur.
Aðfaranótt sunnudags var enski togar-
inn »Yolesus« frá Grimsby á leið út Þist-
ilfjörð frá Þórshöfn. Var togarinn að
leggja af stað til Englands með 80 tonn
af ísfiski, sem keyptur hefur verið norð-
anlands.
Þokusúld var i firðinum. Rakst togar-
inn á Grenjanesboða. — Yar hann á
fullri ferð, er áreksturinn vildi til. Stýri-
maður var á þilfari. Féll hann, er árekst-
urinn varð og rifbrotnaði.
Lágsjávað var, er togarinn rakst á boð-
ann. Var Ægir fenginn til þess að ná
honum út, og tókst það á mánudags-
morgun 28. sept.
Var búist við því, að Ægir myndi fara
með togarann til Akureyrar.
Mikil síldveiði. Skip h. f. »Kveldúlfs«
hættu veiðum um mánaðamót ágúst—
sept.; er veiðitími þeirra skemmri en
undanfarin ár, en afli þeirra meiri en
þekkst hefur hér áður.
Þórólfur veiddi um 21 þúsund mál.
Skallagrimur um 20 þúsund, Snorrigoði
um 18,500. Arinbjörn hersir og Egill
Skallagrímsson um 16 þúsund mál hvor.
Öll var þessi síld látin í bræðslu á Hest-
eyri, nema um 10 þús. mál, sem brædd
voru á Flateyri. — Þess eru engin dæmi
áður, að skip hafi veitt meir en 14 þús.
mál á sumri, og var þá lengri sildveiði-
tími en að þessu sinni. í einu máli síldar,
er ein og hálf tunna síldar.
Rússneskt-íslenzkt verzlunarfélag
hefur nýlega verið stofnað í Reykjavík
fyrir forgöngu Einars Olgeirssonar. 1
stjórn félagsins eru auk hans, Þórður
Eyjólfsson lögfræðingur og Guðbrandur
Magnússon forstjóri Áfengisverzlunar rik-
isins, búsettir í Reykjavík, og Böðvar
Bjarkan lögmaður og Vilhj. Þór konsúll
búsettur á Akureyri.
Líkneski Leifs heppna. Hingað kom
30. f. m. á e. s. íslandi, Mr. Ligno, full-
trúi Bandaríkjastjórnar. Erindi er að sjá
um að koma upp fótstalli undir likan
Leifs heppna, sem stjórn Bandaríkjanna
gaf landinu i fyrra, á 1000 ára afmæli
Alþingis. Fótstallurinn er hingað kominn,
en líkneskið kemur síðar.
Staður fyrir likneskið er nú valinn og
11. september var búið að koma fótstalli
fyrir. Staðurinn er rétt hjá Skólavörð-
unni og er sagt, að hana eigi að rífa.
Munu margir gamlir Reykvíkingar sakna
hennar, sem gamals vinar, en um það
tjáir ekki að fást. Fyrrum var hún á-
gætt sjómerki, en nú eru önnur komin
í hennar stað og auk þess er hún orðin
svo umkringd stórhýsum, að hennar gætir
varla. Bæjarprýði var hún um eittskeið,
en henni var aldrei sá sómi sýndur, sem
skyldi.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RíkisprentsmiCjan Gutenberg.